Iðunn - 01.06.1884, Síða 123
,Monitor’ Jóns Eiríkssonar. 185
höfuðið. Foringi skipsins fellr. Að síðustu kviknar
í skipinu á mörgum stöðum. Draga þeir þá loks
upp hvíta fánann.
Nii vóru þrjú herskip óunnin, er höfðu komið til
liðs við oss frá Fort Monroe. Tvö þeirra, (Minne-
sota’ og ,St. Lawrence’ höfðu rekizt á grynningar og
á inu þriðja, ,Eoanoke’, hafði skrúfan brotnað.
.Merrimac’ snéri nú móti ^Minnesota’ og ,St. Law-
rence’ og hafði 1 fylgd með sér nokkura fallbyssu-
báta. Vorir menn tóku hraustiega á móti og bjugg-
ust þegar við að falla með drengskap. Skutu þeir
frá ^Minnesota’ á einn fallbyssubát óvina vorra svo
að hann brann til kaldra kola. Enn viðreignin stóð
skamma stund, því að (Merrimac’ hætti brátt sókn-
inni. Ottuðust óvinir vorir að þeir kynni að rekast
á grynningar í myrkrinu, og hurfu því undan ; töldu
þeir sér sigrinn vísan og frestuðu orrustunni til
niorguns og snéru aftr inn undir virkin á Sewalls-
tanga.
Nóttina eftir orrustuna var logn og heiðstirndr him-
mn. ^Congress’ stóð í björtu báli; eldrinn læsti sig
um alt skipið og brendi upp dauða monn og dauð-
vona, og hljóp einnig í inar hlöðnu fallbyssur og
hleypti úr þeim, og var að heyra sem þrumandi skot-
hríð í náttmyrkrinu. Loks sló eldinum í púðrbyrg-
1(ð, og með ógurlegri dunreið flýgr skipið í loft upp.
Eldibrandarnir steypast úr háa lofti niðr í sjóinn og
síðan er alt þögult og kyrt.
Nú bjóst hvorratveggja lið til nýrrar orrustu með
morgninum. Vór bjuggumst við, að Mac Gruder
hershöfðingi kœmi frá Newport News ásamt með
.Merrimac’, oghafði hann þrefaldan liðsafla á viðoss.
Bæði í Fort Monroe og Eip Eaps höfðu vorir menn