Iðunn - 01.06.1884, Side 125
jMonitor’ Jóns Eirikssonar. 187
höfðu litla trú á því, að slík skip yrði að liði, og
sumir nefndarmenn gerðu gys að smíðinni. Einir
tveir menn, kapt. Fox, forstjóri sjóliðsdeildarinnar,
og ritari hans, vóru þess hvetjandi, að byggja her-
skip í þessa líking. j?á fékk Bushnell Jón Eiríks-
son til þess að fara til Washington til að skýra mál
þetta fyrir nefndinni. Höfðu þar verið bornar upp
seytján tillögur um herskipagerð, enn svo fór að lok-
um, að þrjár þeirra voru samþyktar og þar með
tillaga Jóns Eiríkssonar. Skipsmíðin var bundin
ströngum skilmálum; skyldi verkinu lokið á 100 dög-
um, og varða ábyrgð ef eigi hepnaðist.
Bushnell og tveir auðmenn með honum réðust í
að hætta fé sínu til að byggja skip þetta. Var nú
tekið til starfa, og gekk smíðin skjótt. Skipið var
líkara fleka enn venjulegu skipi. Var það haft svo
borðlágt til þess að því minna væri hœgt að hafa
að skotspœni er á það væri skotið. jjað var alt
járni byrt, svo að engin skotvopn máttu á því vinna,
slík sem þá gerðust. |>iljur vóru að eins 1-J fet yfir
sjávarflöt. A miðþiljum var turn ; hann var byrðr
þykkri járnhúð og lék á ramgerðum járnfœti. I turn-
inum vóru tvær fallbyssur. Gufuvél var höfð til að
snúa turninum eftir vild, og fylgdi því sá kostr, að
sjálfu 'skipinu þurfti eigi að snúa í orrustu. Mátti
hrœra turninn með lyftingarstöng, og var það létt
verk. Við hvert skot opnuðust fallbyssuhliðin af
sjálfum sér og lukust aftr.
Svo vildi til, að þessa sömu nótt eftir orustuna á
Hampton ítoad kom þetta ið nýja herskip ^Monitor’
til Port Monroe. Eoringinn á ^Monitor’, lautenant
Warden, fór þegar til fundar við foringjann á skipinu
Minnesota’ og beiddist að mega leggja (Monitor’