Iðunn - 01.06.1884, Blaðsíða 134
196 Eyjarskeggjar i Pitcairn.
drykkju sinni. Quintal hafði verið óeirðaseggr inn
mesti, og að síðustu hjó Young hann til bana með
öxi, er hann hafði viljað véla konu hans. f>á vóru
allir þeir menn dauðir, er komu með skipinu Bounty’
til Pitcairn, nema Young og Adams; þeir urðu báð-
ir ellidauðir. Young dó árið 1800, enn Adams 1829.
fegar Young dó var Adam 36 ára að aldri, og
var þá enginn annar fullvaxinn karlmaðr á eynni.
Ófriðr og manndráp eyjarskeggja og síðan einveran
hafði fengið mjög á hann. A hverjum degi gekk
hann upp á klett einn á eynni; kallaði hann þar
stjörnuturninn sinn, og þar litaðist hann um, hvort
hann sæi ekki til skipa, því að hann bjóst alla jafna
við herskipi frá Englandi, er mundi sœkja uppreistar-
mennina frá Bounty’ til þess að þeir fengju makleg
málagjöld. Arið 1795 hafði skip komið til Pitcairn;
höfðu skipverjar farið í land, enn eyjarskeggjar fólu
sig og hurfu hinir burt og urðu einkis vísari.
Félagar Adams létu eftir tuttugu börn og kölluðu
þau hann öll föður sinn ; hann var sem höfuðfaðir
þeirra allra, og styrði einn inni litlu nýlendu. Hann
las á hverjum degi í biblíunni og í bœnabók sinni.
Iðraði hann mjög þess, hvó illa hann liafði breytt á
á yngri árum sínum og varð góðr maðr og guð-
hræddr. Hann varði mikluin tíma til að upp ala
börnin í dygð og guðsótta. Lifði hann þá ánœgðr
og kendi öllum þeim stundum, er hanu eigi sat að
vinnu. Eyjarfólkið lifði kyrru og tilbreytingarlausu
lífi. Allir fóru á fœtr í dögun; í hverjum kofa var
svo lesin morgunbœn og tvoir kapítular úr biblíunni.
Að loknum morgunverði fór hvor til sinnar vinnu.
Börnin gengu í skólann ; þar kendi Adams þeim að
lesa og enska tungu. Inir fullorðnu önnuðust jarð-