Hugur - 01.01.1988, Síða 59

Hugur - 01.01.1988, Síða 59
HUGUR VILHJÁLMUR ÁRNASON læknislist og skipstjómarlist, sem augljóslega lúta ákveðnum reglum, en Sartre ber siðferðið saman við málaralist sem greinilega gefur meira svigrúm til uppfinningar og sköpunar. Eg er þó ekki viss um að þessi munur skipti neinum sköpum. Þótt valsvið listmálarans sé vissulega vítt þá hvílir það ekki á ákvörðun hans hvað telst list og hvað ekki. List, eins og önnur mannleg viðleimi, byggir á ákveðnum hefðum og samkomulagi sem ákvarða hvers konar starfsemi hún er og þessar hefðir setja listamanninum óneitanlega ákveðin takmörk. Þessi takmörk eru þó ekki í sjálfu sér höft á frelsi listamannsins heldur fremur forsenda þess að um listsköpun geti verið að ræða. Það er grundvallaratriði bæði í siðfræðilegri hugsun og siðferðilegum þroska að átta sig á því, að þótt menn ráði því hvað þeir gera er ekki þar með sagt að þeir ráði því hvað þeim ber að gera.8 Þar hlýtur að koma til virðing fyrir raunveru- legum mannlegum verðmætum. Auk þess er merkingarlaust að tala um siðferðilega ákvörðun nema innan raunverulegs sið- ferðis þar sem ákveðnar reglur og hefðir eru þegar í gildi. Ríkjandi siðferði setur því jafnan mörk hvað getur talist sið- ferðileg ákvörðun og hvenær er við siðferðilegan vanda að etja og hvenær ekki.9 Það er því nær sanni að segja að einstakar athafnir þiggi merkingu sína af siðferðinu heldur en hitt að einstakar athafnir manna skapi siðferðið. Meðal undirstöðuþátta í mannlegu siðferði em boð og bönn sem mótast hafa í sögunnar rás. Boð og bönn kveða á um hvað er rétt og hvað rangt og helgast af því á endanum að til em fyrirbæri í þessum heimi sem skipta máli fyrir alla menn - hafa almennt gildi. Dæmi um slík verðmæti eru lífið sjálft og frels- ið. Bönn standa vörð um þessi verðmæti: „þú skalt ekki mann deyða“ og boðin hvetja okkur til góðra verka: „hjálpum nauð- 8 Þetta atriði hef ég rætt sérstaklega í greininni „Um gæði og siðgæði", Samfélagstíðindi (Reykjavík, 1985), bls. 23-37. 9 Peter Winch hefur orðað þetta vel: „For a decision can only be made within the context of a meaningful way of life and a moral decision can only be made within the context of a morality. A morality cannot be based on decisions. What decisions are and what are not possible will depend on the morality within which the issues arise; and not any issue can arise in a given morality.“ Ethics and Action (Routledge and Kegan Paul: London, 1972), bls. 55. 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.