Hugur - 01.01.1988, Qupperneq 74

Hugur - 01.01.1988, Qupperneq 74
SIÐFRÆÐIN OG MANNLÍFIÐ HUGUR löndum er konum uppálagt að hylja andlit sitt á almannafæri. Þetta er eins og hver önnur hefð sem á sér langa sögu og hver kynslóð á fætur annarri meðtekur meira og minna möglunar- laust. En gerum nú ráð fyrir því að frelsisþráin brytist fram í brjóstum nokkurra kvenna og þær risu upp gegn hefðinni. Eina leiðin til þess að leiða mál þeirra skynsamlega til lykta væri að gera réttmæti sjálfrar hefðarinnar að viðfangsefni í siðferði- legum rökræðum. Þá kæmi í ljós að þetta mál er fjarri því að vera eins og hvert annað álitamál eða siður, sem rétt er að láta óátalinn frá siðferðissjónarmiði eins og margir borðsiðir eru t.d., heldur er það liður í kúgun kvenna og stendur í vegi fyrir eðlilegri sjálfsvirðingu þeirra og þroska. Slíkur siður verður því aldrei varinn með siðferðilegum rökum. Þetta dæmi sýnir það eitt hvað gæti gerst ef siðferðileg rök réðu ferðinni og um leið varpar það Ijósi á þau öfl sem ráða ferðinni í reynd. Hugmyndin um siðferðilegar rökræður gerir því ráð fyrir aðstæðum þar sem samræður manna og samskipti em óþvinguð jafnt af ábyrgðarleysi einstaklinga sem af álagi ytri aðstæðna. Það segir sig sjálft að slíkar samræðuaðstæður em ekki annað en hugsjón skynseminnar. Þetta er viðmiðunarhugmynd sem getur gegnt mikilvægu hlutverki í gagnrýni á allar raunvem- legar leiðir sem menn beita til þess að leiða mál til lykta. Hún bendir á að brýnasta verkefnið er að byggja upp afstöðu og aðstæður sem gera menn hæfari til að takast á við þau verkefni sem við þeim blasa. Það sem þarf til þess er stöðug og opin rökræða um það hvað í samfélagi okkar og siðferði er í raun réttlætanlegt og hvað þjónar þröngum sérhagsmunum sem aldrei gætu öðlast réttlætingu í skynsamlegri samræðu allra aðilja. Rökræðan miðar þannig að því að greina á milli þess óréttlætis sem hefð og valdakerfi hafa fest í sessi og þeirra hefðbundnu hagsmuna sem eru mönnum sameiginlegir og nauðsynlegir til þroska. Þegar þetta siðferðilega samræðu- form er haft að- leiðarljósi færist áherslan af því, að hver og einn einstaklingur geti viljað að allir geri eins og hann, yfir á 72
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.