Morgunn - 01.06.1931, Page 60
54
MORGUNN
lega enginn jafn-fjölhæfur eöa fullæfður eins og Indriði
Indriðason. Mest mun vera um skygni, dulsýn og dul-
heyrn, ósjálfráða skrift og ekki all-fáir „trance“-miðlar.
Um líkamningamiðla hefi eg ekki heyrt. Hefir þetta stuðl-
að eigi lítið að ]>ví, að fjölga áhangendum málsins. Þó að
flestir þessir sálrænu menn haldi tilraunir aðeins í fá-
mennum vinahóp, þá hafa ekki all-fáir á þann hátt fyr-
ir eigin reynslu sannfærst um, að þeir hafi fengið sam-
band við framliðna vini. Er það að sjálfsögðu fullkomn-
ast og mest eftirsótt, að fá þannig eigin reynslu, áður
en menn geti þótzt vissir í sinni sök, þó að þess verði
sjálfsagt langt að bíða, að allur almenningur geti átt kost
á slíkri eigin reynslu. Enda er það algengt og síður en
svo nokkur frágangssök, að sannfærast fyrir reynslu ann-
ara og trúverðleik, sjaldan líklega af einstöku reynslu-
atvikum, heldur þegar safnast saman fjöldi sannana
frá algjörlega trúverðugum mönnum, sem ekki verða
rengdir. Á þann hátt hafa allar flóknari niðurstöður
vísindanna hlotið óvéfengda viðurkenning allra. Fyrst
er það að eins tilgáta eða lítil bending, þá tekst fleirum
og fleirum að sannreyna það, þangað til það þykir full-
sannað og er þá viðurkent af öllum, þótt allan almenn-
ing bresti þekking og annað, til að geta skilið það.
Sálai’rannsóknafélagið stendur nú ekki á þeim
grundvelli, að geta yfirleitt gjört félögum sínum kost
á reynslu-þekking á málinu með tilraunafundum. Þyrfti
til þess gott hús, vel fyrir komið og fleira. En það hefir
þó ávalt viljað, eða stjórn þess, leitast við eftir megni,
að gefa félagsmönnum tækifæri til þess að kynnast til-
raunafundum, og hafa í því skyni verið á vegum þess
eða fengnir að tilhlutan stjórnarinnar miðlar, innlendir
og útlendir, sem margir íélagsmenn eiga þess að minn-
ast, að þeir hafa fengið ánægjulega og sannfærandi
fundi með, þó að vitanlega nái það ekki til allra fé-
lagsmanna. Eg minni á Vout Peters, tvisvar sinnum, og
Einar Nielsen fyrir nokkrum árum, Andrés Böðvars-