Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 22

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 22
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201222 SJÁlfStJÓrnUn barna og Ungmenna að því sem kalla má skort á sjálfstjórnun, þ.e. hvernig lítill sjálfsagi leiðir til ýmiss konar óæskilegrar hegðunar og óheilbrigði, svo sem þátttöku í afbrotum og ofþyngdar (sjá til dæmis Evans, Fuller-Rowell og Doan, 2012). Meðal fræðimanna sem rannsaka þroska barna og ungmenna virðist þó almennt litið svo á að sjálfsagi sé aðeins einn undirþáttur sjálfstjórnunar. Þegar fólk stjórnar eigin tilfinningum, hugsun eða hegð- un, kemur sjálfsagi vissulega við sögu. Fólk þarf til dæmis sjálfsaga til að halda aftur af reiði eða halda athygli að krefjandi verkefni, en eins og fjallað hefur verið um fellur ýmiss konar önnur færni undir sjálfstjórnun, svo sem markmiðssetning og sveigjan- leiki í hugsun. Kopp (1982) lítur svo á að sjálfsagi sé undanfari flóknari sjálfstjórnunar. Það er mikilvægt að börn læri sjálfsaga, til dæmis að halda aftur af gráti og nota frekar orð til að leysa ágreining, en þegar barn hefur náð slíkri stjórn gefur það færi á flóknari sjálfstjórnun sem gerir því kleift að beina og breyta hegðun sinni í takt við kröfur um- hverfisins hverju sinni með það fyrir augum að ná markmiðum sínum (Kopp, 1982). Algengt er að greint sé á milli tilfinningastjórnunar (e. emotional self-regulation) annars vegar og vitrænnar sjálfstjórnunar (e. cognitive self-regulation) hins vegar (McClelland o.fl., 2010). Tilfinningastjórnun, sem stundum er lýst sem „heitri“ sjálf- stjórnun, vísar til þess hversu auðvelt fólk á með að stjórna tilfinningum og áhuga- hvöt og tjáningu þeirra (Willoughby, Kupersmidt, Voegler-Lee og Bryant, 2011). Líkt og hugræn sjálfstjórnun felur tilfinningastjórnun í sér stjórnun hugsunar (til dæmis athygli) og hegðunar (til dæmis að halda aftur af viðbragði), en í tengslum við áreiti sem vekur sterkar tilfinningar, svo sem reiði eða löngun. Margar af fyrstu rannsókn- unum á sjálfstjórnun snerust að miklu leyti um tilfinningastjórnun. Mischel er braut- ryðjandi í rannsóknum á getu barna til að standast freistingar (e. delay of gratification) og frægastar eru sjálfsagt „sykurpúðatilraunir“ hans frá því á seinni hluta síðustu aldar (Baumeister o.fl., 2007). Í slíkri rannsókn er barni yfirleitt boðinn einn sykur- púði sem það má borða samstundis en ef barnið getur beðið í vissan tíma án þess að borða sykurpúðann fær það tvo sykurpúða að biðinni lokinni. Rannsóknir Mischels og samstarfsmanna sýndu að geta barna á leikskólaaldri til að standast freistingar tengdist ýmiss konar þroska á sama aldri, ekki síst velgengni í námi. Þegar börnum sem tekið höfðu þátt í rannsóknum þeirra þegar þau voru á leikskólaaldri var fylgt eftir á unglingsárum kom í ljós að tengslin vörðu enn, til dæmis áttu börn sem gátu staðist freistingar og haldið aftur af hegðun á leikskólaaldri betri samskipti við aðra, leið betur og gekk betur í námi á unglingsaldri en börnum sem höfðu átt erfitt með slíka stjórnun (Mischel, Shoda og Rodriguez, 1989). Það vakti athygli að ein mæling á afmarkaðri getu skyldi hafa forspárgildi fyrir námsgengi svo löngu síðar. Nýlegar rannsóknir á sjálfstjórnun setja niðurstöður Mischels í víðara samhengi, meðal annars við vitræna stjórnun. Færnin sem börn þurfa til að standast sykurpúðaprófið stuðlar einnig að námsárangri; þau þurfa að setja sér markmið (fá tvo sykurpúða frekar en einn), stjórna hegðun til að standa við áætlunina (taka ekki sykurpúðann sem er fyrir framan þau, til dæmis með því að beina athygli að einhverju öðru eða minna sig á verðlaunin sem bíða þeirra) og halda aftur af lönguninni í sykurpúðann og því við- bragði að taka það sem þau langar í. Nýrri rannsóknir leiða einnig í ljós mikilvægi tilfinningastjórnunar í að takast á við neikvæðar tilfinningar. Tökum dæmi um dreng sem er strítt af félaga sínum í skólanum. Ef drengurinn hefur góða tilfinningastjórnun
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.