Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 48

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 48
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201248 YngStU leikSkÓlabörnin: Samfélag í leik Corsaro (2003) hefur í rannsóknum sínum á félagslegum samskiptum í jafningja- hópum skoðað hvaða aðferðir börn á aldrinum þriggja til sex ára, sem hittast reglu- lega, nota í þeim tilgangi að komast inn í leik hvert hjá öðru. Aðferðirnar flokkar hann í þrennt: óyrt innganga (e. nonverbal entry) þar sem börnin nota líkamann til að gefa í skyn fyrirætlun, þau hringsóla (e. encirclement) í kringum leiksvæðið og bjóða fram hlut eða vísa í tengsl sín á milli (e. verbal reference to affiliation). Stambak og Verba (1986) lýsa ferli sem börn nota til að komast að samkomulagi um merkingu í leik án þess að nota orð. Í fyrstu setur barnið fram hugmynd sem leikfélaginn túlkar og bregst við. Viðbrögðin kalla fram aðrar athafnir hjá barninu sem hóf ferlið og samskiptin halda áfram um stund. Þannig deila börnin sameiginlegri túlkun og aðlaga og breyta athöfnum sínum í samræmi við athafnir og túlkun leikfélagans. Alvestad (2010) skoð- aði einnig aðferðir tveggja og þriggja ára leikskólabarna til að komast að samkomu- lagi en kannaði um leið um hvað samningaumleitanir þeirra snerust. Í ljós kom að börnin leituðu helst eftir að ná samkomulagi um tengsl sín á milli, um leikefni og um innihald leiksins. Aðferðirnar voru ýmist tilfinningalegs eðlis eða miðuðu að því að leysa vandamál. Auk þess var algengt að börnin notuðu kímni sem aðferð til þess að komast að samkomulagi. Rannsóknin sýndi að börnum sem léku mest við önnur börn og börnum sem þekktust vel tókst best upp í samningaumleitunum sín á milli. Kímni kom einnig við sögu í rannsókn Loizou (2007) með ungum leikskólabörnum sem tóku þátt í athöfnum sem byggðust á kímni og notuðu kímni til að stjórna og koma sjálfum sér á framfæri í félagslegu samhengi. Einnig hefur komið í ljós í rannsóknum Johansson (1999, 2007, 2009) að í sam- skiptum sínum skapa ung börn merkingu sem tengist siðvitund þeirra. Niðurstöður rannsókna hennar í sænskum og áströlskum leikskólum sýna að út frá sjónarhorni barnanna hefur það gildi að „gera rétt“, þ.e. að hlýða reglum sem starfsmenn hafa sett, en einnig að sýna umhyggju gagnvart öðrum, bæði fullorðnum og börnum. Gildið að „gera rétt“ virðist vera samtvinnað þróun samhuglægni barnanna gagnvart lífinu í leikskólanum og tengslunum sem byggð eru upp milli barna og fullorðinna. Félagslegt samfélag ungra barna Deild í leikskóla er samfélag þar sem börn og fullorðnir hittast og eru saman. Í dag- legri umgengni og leik deila börnin upplifunum, tilfinningum og hlutum. Félagsleg tengsl og vinátta barna byggist á því að þau hafi möguleika á að kynnast hvert öðru (Howes, 1987). Börn eru fjölbreyttur hópur með ólíka færni til að eiga í samskiptum og tengslum og koma með fyrri reynslu með sér inn í leikskólasamfélagið (Howes, 2011). Í samskiptum sínum móta börn hugmyndir sínar um félagana og félagsleg tengsl þróast smám saman þar sem börnin hafa áhrif og verða fyrir áhrifum af félögunum. Strandell (1999) bendir á að aðferðir barna við að láta í ljós skoðun sína á því hverjir eigi að leika saman og hvar leikurinn eigi að fara fram sé þáttur í félagslegri iðkun þeirra í leikskólanum. Í yfirliti yfir rannsóknir á samskiptum barna innan félagahóps- ins benda Skånfors, Löfdahl og Hägglund (2009) á að flestar rannsóknanna lýsi sam- skiptum barna út frá hugtökunum að veita hlutdeild í og að útiloka frá þátttöku í leik en síður því hvernig börn skapa tengsl sín á milli.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.