Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 49

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 49
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 49 Hrönn pÁlmadÓttir og JÓHanna einarSdÓttir Komið hefur í ljós að í samskiptum barna verða til félagsleg mynstur sem geta haft áhrif á stöðu barnanna innan hópsins. Valdatengsl, sem skapast milli barnanna, geta því haft áhrif á möguleika þeirra á að njóta félagslegra tengsla innan hópsins (Lee og Recchia, 2008; Löfdahl 2006; Löfdahl og Hägglund, 2006). Í rannsóknum Johansson (1999, 2011b) meðal ungra barna kom fram að börn beita bæði jákvæðum og neikvæð- um aðferðum til að hafa áhrif á það hverjir fá að taka þátt í leiknum og hverjir ekki. Einnig virðist vera eftirsóknarverðara að leika við félaga sem eru á líkum aldri en að leika við sér yngri börn. Þessar niðurstöður eru í samræmi við rannsókn ytterhus (2002) meðal þriggja til sex ára leikskólabarna þar sem félagsleg samvera barna var skoðuð. Ef börnunum var leyft að velja leikfélaga kusu þau oftast börn sem voru lík þeim í aldri, stærð og af sama kyni. Í rannsókn Shin, Recchia, Lee, Lee og Mullarkey (2004) voru aðferðir leikskólabarna á aldrinum 22 mánaða til fjögurra og hálfs árs við að stjórna öðrum (e. leadership behavior) kannaðar. Niðurstöður gáfu til kynna að aðferðirnar sem börnin beittu tengdust fremur tengslum barnanna en persónulegum eiginleikum þeirra. Börnin virtust nota félagslegt vald sitt til þess að þróa tengsl við félaga og fullorðna samtímis því sem þau bæði veittu hlutdeild og útilokuðu ákveðna félaga og kennara. Innan barnahópsins í leikskóla verða smám saman til hefðir og menning sem börnin skapa í sameiningu (Viencze, 1971). Corsaro (2003; 2005; 2009) hefur sýnt fram á með rannsóknum sínum að börn á aldrinum tveggja til sex ára telji félagslega þátt- töku sína innan barnahópsins mjög mikilvæga og þau þrói aðferðir til að ögra stjórn fullorðinna. Í rannsóknum hans komu fram tvö meginþemu sem einkenndu athafnir barnanna innan jafningjamenningarinnar. Annars vegar voru það tilraunir barnanna til að öðlast stjórn á lífi sínu og hins vegar til að deila stjórninni með öðrum. Það getur verið flókið fyrir börn að laga sig að og viðhalda samskiptum sín á milli. Þegar börn eru í leik og hafna öðrum börnum eða útiloka þau frá leiknum túlkar Corsaro það sem tilraunir þeirra til að vernda samskiptasvæði (e. interaction space) sem þau hafi þegar skapað í samvinnu með leikfélögum. Hann bendir á að tilhneiging sé í þá veru að túlka athafnir barnanna sem eigingjarnar eða að börnin séu ekki nægilega þroskuð til að deila með öðrum börnum. Hreyfing og leikur barna getur verið í andstöðu við hugmyndir leikskólakennara um það hvernig börnin eiga að nota líkamann og hvernig umhverfið á að líta út. Stólar geta til dæmis gegnt því hlutverki að „venja“ líkama barna við fyrirfram ákveðið skipulag og draga úr óreiðu sem fullorðnir upplifa að einkenni tjáningarmáta ungra barna (Kirkeby, Gitz-Johansen og Kampmann, 2005). Leikur barnanna er ekki endilega óreiða út frá sjónarhóli þeirra; þau móta sínar eigin reglur (Andersen og Kampmann, 1996). Í rannsókn Corsaros og Molinari (1990) með tveggja ára leikskólabörnum kom fram að þau glöddust sameiginlega og notuðu hluti í umhverfinu á skapandi hátt sem var í andstöðu við fyrirætlun starfsfólks. Niðurstöður rannsóknar Rutanen (2007) í finnskum leikskóla eru á sömu lund en þar kom í ljós að eins og tveggja ára leik- skólabörn tóku virkan þátt í að skapa sameiginlega menningu með svipbrigðum og hreyfingu. Börnin bjuggu til frumlegar hreyfingar og merkingu með leikföngum sem þeim var boðið að leika sér með en athafnir þeirra voru ekki alltaf í samræmi við fyrir- ætlanir og væntingar kennara þeirra um notkun leikfanganna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.