Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 52

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 52
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 201252 YngStU leikSkÓlabörnin: Samfélag í leik Þegar myndbandsupptökur eru notaðar í rannsóknum skiptir miklu máli að vanda til upptökunnar en bæði hljóð og mynd geta haft áhrif á gæði gagnanna (Flewitt, 2006; Heath og Hindmarsh, 2002). Svo að komast mætti nærri lífheimi barnanna og tryggja gæði hljóðs og myndar reyndist nauðsynlegt að halda á upptökuvélinni og fylgja hreyfingu barnanna eftir. Jafnframt þurfti að gæta þess vel að takmarka hreyfingu vélarinnar. Upptökurnar beindust að því sem gerðist milli barna á tilteknum stöðum í leikstofunum, svo sem í heimiliskrók þar sem börnin léku á gólfi með stærri leikföng, og að leik barnanna við borð. Einnig kom fyrir að einu eða tveimur börnun var fylgt eftir og leiddu þá athafnir þeirra sjónarhorn upptökunnar. Gagnstætt fullorðnum eru börn yfirleitt fljót að venjast upptökunum (Greve, 2007; Hrönn Pálmadóttir, 2004; Løkken og Søbstad, 1995). Johansson (2011b) leggur áherslu á að þó að ung börn séu fljót að venjast rannsakanda og upptökutæki reyni þau einnig að skilja merkingu að- stæðna, hvers sé vænst af þeim og hvernig þau eigi að koma fram við rannsakandann. Eftir því sem á leið leituðu börnin eftir samskiptum við rannsakanda og sum þeirra veittu upptökuvélinni athygli. Börnunum var þá boðið að horfa á félaga sína gegnum linsuna og fannst það yfirleitt áhugavert um stund en misstu áhugann fljótlega og héldu fyrri iðju áfram. Greining gagna Að nálgast og túlka sjónarhorn barna krefst aðgangs að athöfnum þeirra í þeirra eigin lífheimi eða fyrirbærafræði barnanna sjálfra (Sommer, Pramling Samuelsson og Hundeide, 2010). Mörg siðferðileg álitamál koma upp þegar stigið er inn í heim barna og það gerir ríkar kröfur til rannsakanda að gæta þess að trúnaður og virðing ríki í samskiptum við þátttakendur (Dockett, Jóhanna Einarsdóttir og Perry, 2009; Jóhanna Einarsdóttir, 2007; Johansson, 2011a). Það er flókið að nálgast raddir ungra barna og vandaverk að túlka þær. Í því sambandi er lögð áhersla á að veita líkamlegri tjáningu barnanna sérstaka athygli og lýsa upplifun þeirra. Ef til vill er eingöngu hægt að líta á það sem heiðarlega tilraun til að tala fyrir hönd þeirra (Eide og fl. 2010; Johansson, 2003; Johans- son og Emilson, 2010). Myndbandsupptökur gefa kost á að grandskoða smáatriði og greina þannig bæði líkams- og máltjáningu barna. Einnig er mögulegt að stjórna hraða myndarinnar og fá fram kyrrmyndir, til dæmis til þess að sjá hvert barnið beinir athygli sinni (Gillund, 2007; Graue og Walsh, 1998; Greve, 2007; Roberts-Holmes, 2005). Myndbandsupptök- urnar í rannsókninni voru afritaðar yfir í texta en mikilvægt er að vera nákvæmur í af- ritun og skipuleggja hana þannig að það henti rannsókninni (Bucholtz, 2007; Flewitt, 2006; Heikkilä og Sahlström, 2003). Í rannsókninni var afritun gerð í tölvuforritinu InqScribe og lögð áhersla á skráningu óyrtra boðskipta, þ.e. svipbrigða, líkamsstell- inga og tónfalls í rödd, auk orða. Skráð var hvernig börnin hófu leik og hvað þau gerðu til þess að halda leiknum áfram. Auk þess voru aðferðir barnanna við að koma inn í leik, sem þegar var hafinn, skráðar og hvernig börnin sem fyrir voru brugðust við. Það er vandasamt að afrita úr mynd yfir í texta og ekki hægt að líta á það sem annað en endursköpun á því sem átti sér raunverulega stað í samskiptum barnanna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.