Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 83
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 83
atli HarðarSon
ríkjandi hefð í námskrárfræðum. Stúdentar höfðu nýlega gert uppreist gegn mennta-
kerfi og samfélagsháttum. Sextíu og átta kynslóðin var enn ung og róttæk og margir
tortryggnir í garð menntastefnu sem ætlað var að móta unglinga eftir markmiðum
sem viðurkennd voru af yfirvöldum.
Möguleikinn á að annað verði úr nemendum en kennarar og yfirvöld menntamála
ætla er enn til staðar, sem betur fer. Þessi möguleiki tengist þriðja atriðinu í andófi
Stenhouse gegn því að skipuleggja nám út frá markmiðum. Það er nefnilega svo að
því betur sem menntun heppnast, þeim mun óútreiknanlegra er hvað út úr henni
kemur. Ef það tekst virkilega vel að mennta nemanda þá er eins víst að hann finni lífi
sínu markmið sem kennurunum hefðu aldrei til hugar komið.
Rök Stenhouse fyrir því að ekki sé hægt að tilgreina fyrir fram hvað gott hlýst af
menntun eru flókin en meginhugsunin birtist í þessum orðum úr bók hans frá 1975:
Menntun … heppnast að svo miklu leyti sem hún gerir atferli nemenda ófyrirsjáanlegt.
Hugsum okkur að það sé verið að fara yfir söguritgerðir. Sá sem fer yfir þær þarf
að lesa þær ansi margar.
Sem hann les stendur hann oft frammi fyrir þeirri dapurlegu staðreynd að rit-
gerðirnar eru hver annarri líkar. … En það leynist samt ein og ein í staflanum sem er
frumleg, kemur á óvart, sýnir merki um sjálfstæða hugsun. Þessar ófyrirsjáanlegu,
það eru þær sem eru til marks um árangur. (Stenhouse, 1975, bls. 82; leturbreyting
hans)
Um leið og fallist er á að menntun miði að því að nemandi geti komið kennurum sínum
á óvart er líka fallist á að kennarinn geti ekki sagt fyrir fram hvernig nemandinn á
að verða. Það má skýra þetta á fleiri vegu. Ein leið er að benda á að opið samfélag í
þróun notar menntakerfi sitt ekki einungis til að miðla þekkingu og gildum. Það leitar
líka nýrrar þekkingar og nýrra gilda með þessu sama menntakerfi. Ef við einblínum
á miðlunina getum við kannski skipulagt kennslu út frá markmiðum. En þegar við
hugum að leitinni verður okkur ljóst að það er ekki hægt að fastsetja fyrir fram hverju
menntunin skilar. Ef hún gerir menn sjálfstæða og færa um að hugsa eitthvað nýtt þá
verður útkomunni ekki lýst fyrir fram, að minnsta kosti ekki af nákvæmni.
lokAorð
Hefðbundið líkan af námskrárgerð sem rekja má til Bobbitts og Tylers gerir ráð fyrir
að markmið séu ákveðin fyrst og leitt af þeim hvað skuli kennt. Krafa nýrrar aðalnám-
skrár framhaldsskóla um að hver áfangi sé skipulagður út frá markmiðum sem til-
greina þekkingu, leikni og hæfni er í anda þessa líkans og lýsingin á grunnþáttunum
sem sameiginlegum yfirmarkmiðum allra námsgreina er það að nokkru leyti.
Sé vit í gagnrýni Schwabs er ekki hægt að byrja með hreint borð og endurskapa
skólann. Þessi gagnrýni útilokar hins vegar ekki að það sé bæði mögulegt og skyn-
samlegt gera hóflegar umbætur með hliðsjón af markmiðum á borð við grunnþættina.
Það er mikill munur á að vinna að umbótum innan hefðar eða kerfis þar sem gamlir
veggir standa (svo enn sé vitnað í líkingu Descartes) og að skapa nýtt frá grunni. Það