Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 95

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 95
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 95 HJalti JÓn SveinSSon og rúnar SigÞÓrSSon börnin ljúka framhaldsskólanámi en félagsleg staða foreldra og einkunnir nemenda á samræmdum prófum í 10. bekk (Sigrún Aðalbjarnardóttir og Kristjana Stella Blöndal, 2005). Þá eru meiri líkur taldar á að unglingar í þessum hópi velji sér félaga sem um- hugað er um nám og gott gengi í skóla (La Guardia og Ryan, 2002). Þessir þættir eru taldir styrkja trú unglinga á eigin getu og því eru þeir afar mikilvægir (Bandura, 1997). Framhaldsskólinn og nám við hæfi Samkvæmt gildandi lögum ber framhaldsskólum að kappkosta að bjóða öllum nem- endum nám við hæfi (Lög um framhaldsskóla nr. 92/2008). Hliðstætt ákvæði var í lögum um framhaldsskóla frá 1996 (Lög um framhaldsskóla nr. 80/1996). Þrátt fyrir þessi ákvæði og viðleitni framhaldsskóla til að taka sem best á móti nýnemum og leiða þá fyrstu skrefin á nýjum vettvangi er staðreyndin sú, eins og áður hefur komið fram, að ákveðinn hópur hverfur frá námi eftir fremur skamma viðdvöl. Í þeim framhaldsskólum sem taka inn nýnema án tillits til námsárangurs verður að gera ráð fyrir að koma þurfi til móts við margvíslegar þarfir nemenda með sérstökum ráðstöfunum, hvatningu og ráðgjöf til þess að þeir geti lokið námi (Evrópumiðstöðin fyrir þróun í sérkennslu, 2011; Ferguson, Tilleczek, Boydell og Rummens, 2005; Til- leczek og Ferguson, 2007). Háar brotthvarfstölur sem vitnað er til hér að framan hljóta að vera til vitnis um að framhaldsskólum takist þetta ekki og að það séu ekki ein- ungis nemendur sem falla undir þá skilgreiningu að vera í sérstökum áhættuhópi sem hverfa brott frá námi heldur einnig nemendur sem uppfylla öll innritunarskilyrði framhaldsskóla þegar þeir hefja þar nám. Það leikur ekki lengur vafi á að viðhorf og starfshættir í skólum og forysta stjórnenda hafi áhrif á gengi nemenda (Ainscow og Miles, 2008; Barber, Whelan og Clark, 2010; Evrópumiðstöðin fyrir þróun í sérkennslu, 2011; Hayes, Mills, Christie og Lingard, 2006). Því verður að spyrja hvort framhaldsskólar hafi leitað allra leiða til að koma sem best til móts við sem flesta nemendur. Brotthvarfstölur og tölur um fall í byrjunar- áföngum í stærðfræði gefa til dæmis vísbendingar um að kennslan beri ekki tilætlaðan árangur og nemendur fælist jafnvel námsgreinina vegna þess að þeir eigi í erfiðleikum með að tileinka sér námið (Kristín Bjarnadóttir, 2011). Meðal þeirra sem hætta í þessum áföngum eða falla á prófum í þeim eru nemendur af hinum ýmsu brautum skólans sem hafa jafnvel sýnt prýðisárangur í öðrum greinum á skólaferli sínum. Rannsókn Kristínar Bjarnadóttur (2011) á hægferðaráfanganum Stærðfræði 102 í nokkrum fram- haldsskólum með áfangakerfi sýndi að rúmur helmingur nemenda í þeim áföngum sem rannsóknin náði til taldi sér ekki ganga vel í stærðfræði, tæp 60% skráðra nem- enda mættu að jafnaði í tíma á meðan rannsóknin stóð yfir og nemendur gengu oft út úr kennslustundum. Ennfremur kom í ljós ósamræmi milli kennslunnar og Aðal- námskrár framhaldsskóla í stærðfræði (Menntamálaráðuneytið, 1999b). Til dæmis var lengra farið í algebru en námskráin sagði fyrir um í fjórum skólum af fimm en hvergi var tíma varið í samvinnuverkefni eða ritgerðir. Kristín kemst að þeirri niðurstöðu að margir nemendur komi vanbúnir í stærðfræði úr grunnskóla og framhaldsskólinn eigi að bjóða upp á nám sem nemendur finna sig í og mæta þeim þar sem þeir eru. Annars er hætt við að stærðfræðinámið verði merkingarlaust, viðhorf nemenda til
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.