Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 123

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 123
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 123 gUðrún alda HarðardÓttir og kriStJÁn kriStJÁnSSon útkomu eigin framkvæmda, 4) sýndi viðleitni til að sigrast á erfiðleikum. Rannsókn Horáková-Hoskovcová er mikilvæg bæði vegna áhugaverðra viðmiðana á trú barna á eigin getu og þess hve lítið er um fyrri rannsóknir af þessu tagi. Hins vegar telur fyrri höfundur þessarar greinar að aðstæður sem viðkomandi börnum voru búnar hafi ekki verið ákjósanlegar: Tveir alls ókunnugir einstaklingar koma heim til barns og fara fram á að það leysi allskyns verkefni. Flestir foreldrar hafa staðið frammi fyrir því að barn þeirra, sem almennt hefur talist hafa mikla trú á eigin getu, hefur neitað að leysa ýmis verkefni sem ókunnugir hafa lagt fyrir það: til að mynda, við 2,5 ára skoðun á heilsugæslustöð, að barnið teikni könguló eða eitthvað annað en karl á blað eins og það er beðið um að gera. Spyrja má hvort það að leysa verkefni á annan máta en beðið var um beri vott um litla trú á eigin getu eða öfugt. Ætla má að mælitæki á fyrirbæri eins og trú á eigin getu, sem samkvæmt kenningu (Bandura, 1997, bls. 36–42) hefur fjölbreyttar víddir og birtingarmyndir, þurfi að veita víðtæka möguleika. Umhverfi hefur áhrif á birtingarmynd trúar á eigin getu; það hefur til dæmis oft verið talið að stúlkur sýni meiri trú á eigin getu á hlutverkasvæði leikskóla en víða annars staðar í skólanum. Af því leiðir að ekki er nægjanlegt að leggja einstök verkefni fyrir barn heldur þarf að skoða það við eðlilegar og mismunandi aðstæður þess í leik og starfi: í fjölmennum barnahópi, í fámennum barnahópi, í hlutverkaleik, við matarborð og þar fram eftir götum. Fyrri höfundur þessarar greinar telur jafnframt að huga þurfi að öðrum aðferða- fræðilegum þáttum í rannsóknum með börnum; einn þeirra er að börn hugsa öðruvísi en fullorðnir. Fjölmargir fræðimenn, þar má nefna Bergström (1995, bls. 86), Dyregrov (1990, bls. 13–16), Fahrman (1993, bls. 48–49) og Piaget (sbr. Ginsburg og Opper 1969, bls. 230), benda á þessa staðreynd. Heilasérfræðingurinn Matti Bergström (1995) telur að fullorðnir eigi oft erfitt með að skilja börn og sjónarhorn þeirra, meðal annars vegna þess hve ólíkir heilar barns og fullorðins séu. Í rannsóknum Earls, Smith, Reich og Jung (1988) svo og Perry, Pollard, Blakley, Baker og Vigilante (1995) kemur fram að fullorðnir túlka athafnir, orð og tjáningu barna oftast út frá eigin sýn og trú, sem oft og tíðum getur verið bjöguð og ekki sú sama og sýn barnsins – vegna ólíkra hugsunar- og túlkunarferla. Í rannsókn Corkett, Hatt og Benevides (2011), um tengsl á milli trúar grunnskólakennara og nemenda þeirra á eigin getu, kemur fram að fylgni er á milli trúar kennaranna á eigin getu og trúar þeirra á getu nemendanna. Niðurstöður rann- sóknarinnar sýna hins vegar jafnframt að fullorðnir túlka athafnir og orð barna einatt út frá eigin sýn og trú. Þar sem formlegir rannsakendur eru oftast fullorðið fólk má segja að hér sé talsverður aðferðafræðilegur vandi á ferð. Malaguzzi, gagnrýndi ríkjandi aðferðir í rannsóknum með börnum og á leikskóla- starfi. Hann benti á að rannsókn verði ávallt til í tengslum við mannlega skynjun, tengslum sem ekki sé hægt að komast hjá; hins vegar sé mikilvægt að skoða það sem skráð er ekki aðeins frá einu sjónarhorni, til dæmis rannsakandans, og hann lagði áherslu á að rannsókn á skólastarfi þurfi umfram allt að vera skráning á raunverulegum atburðum við sem eðlilegastar aðstæður. Síðan þurfi að túlka skráningarnar út frá fjöl- breytilegu sjónarhorni, enda náist þannig betri sýn á það flókna merkingar- og raun- samband sem felst í hverri athöfn. Út frá fyrrgreindum hugmyndum þróaði Malaguzzi, ásamt kennurum í leikskólum í Reggio Emilia, skráningaraðferð sem á íslensku hefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.