Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Síða 179

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Síða 179
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 179 Ja n US g U ð l aU gS So n á sviði þjálfunarlífeðlisfræði, líffærafræði, lífeðlisfræði, næringarfræði, almennrar og sérhæfðrar kennslufræði, sálar- og félagsfræði, auk þess sem nemendur öðlast þekk- ingu á fjölþættri útivist, íþróttum og ekki síst rannsóknum á sviði heilsu- og næringar. Námskrá í sérgreininni setur þessum tilvonandi sérfræðingum á sviði kennslu skóla- íþrótta markmið sem útfæra þarf í skólastarfi, en einnig stjórnendum háskólastofnana sem sjá um menntun kennara. Því er mikilvægt að vel takist til við hönnun og gerð námskrár sem á að vera leiðarvísir skóla og kennara um ókomin ár. Því miður eru ný drög að námskrá í skólaíþróttum fyrir grunnskóla (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012b) nokkuð langt frá því að geta gert að veruleika þá sýn greinarhöfundar um að skólaíþróttir verði betur nýttar til eflingar heilsu ein- staklingsins í framangreindum skilningi þess hugtaks. Fyrsta efnisgrein, að loknum inngangi undir fyrirsögninni skólaíþróttir, hefst á þessa leið: „Skólaíþróttir ná til kennslu íþróttagreina …“ Upphaf næstu efnisgreinar er eftirfarandi: „Skólaíþróttir ná einnig til keppnisliða sem nemendur mynda til keppni milli bekkja eða á annan hátt innan skólans“ og í lokamálsgrein sömu efnisgreinar á blaðsíðu 2 segir eftirfarandi í torskilinni setningu: „Skólaíþróttir og skólasund falla hér saman undir námssviðið skólaíþróttir í aðalnámskránni.“ Þjálfun í íþróttagreinum eða ástundun keppnisíþrótta í skólum á ekki að ráða för í skólaíþróttum þótt þetta séu þættir sem eru góðra gjalda verðir ef vel er á haldið. Megináhersla skólaíþrótta á að samræmast skýrum skilaboðum helstu heilbrigðis- stofnana heims þess efnis að auka beri vægi heilsuuppeldis og heildrænnar nálgunar á sviði heilsueflingar og forvarna meðal barna. Á þann hátt má vinna gegn þróun áhættuþátta þeirra langvinnu sjúkdóma sem nefndir hafa verið hér að framan. Innlendar og erlendar rannsóknir sýna að börn og unglingar hreyfa sig almennt minna nú en þau gerðu um miðja síðustu öld og undir lok hennar. Þá hefur þreki barna og ungmenna á Vesturlöndum hrakað samfara þessari þróun (Kyröläinen, Santtila, Nindl og Vasankari, 2010). Offita jókst mjög meðal barna frá miðjum níunda áratug síðustu aldar til ársins 2000 og hefur haldist nokkuð óbreytt síðan (Stefán Hrafn Jóns- son og Margrét Héðinsdóttir, 2012). Til að snúa þessari þróun við þarf að auka daglega líkamlega virkni barna og unglinga með fjölbreyttri hreyfingu. Samhliða því þarf að efla jákvæð viðhorf til heilsuræktar og auka þekkingu og skilning hvers einstaklings á ábata markvissrar og fjölþættrar líkamlegrar þjálfunar lífið á enda. Á tíu árum skólaskyldunnar þarf að leggja hornstein að góðri heilsu út lífið. Hver er hin raunverulega heilsufarsstaða íslenskra barna og unglinga á grunnskólaaldri? Þeirri spurningu þarf að svara með nákvæmri úttekt og rannsóknum á þjálfunarlíf- eðlisfræðilegum gildum. Þá fyrst er hægt að setja raunhæfa stefnu um markmið og aðgerðir tengdar heilsu barna og unglinga í skólum. Þeir sem sérstaklega þurfa á markvissri hreyfingu að halda eru yfirleitt nemendur sem ekki komast í skólaliðið í fótbolta vegna slakrar hreyfigetu eða keppa ekki í skóla- hreysti vegna þrekleysis. Að vera í klappliðinu bætir ef til vill andann um stund en til lengri tíma skilar það sér ekki í bættu þreki fjöldans. Hér þarf því að huga að einum þætti til viðbótar úr grunnþáttum menntunar en það er jafnrétti til náms. Komist nem- andi ekki í skólaliðið í skólahreysti eða í handbolta- eða fótboltaliðið má spyrja hvort það sé jafnrétti til náms. Það má vera að viðkomandi njóti sín sem áhorfandi og sé
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.