Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 180

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Page 180
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012180 nÁmSkrÁ í HeilSUrækt sáttur við stöðu sína en ef stefnan er sú að auka eigi hreysti, heilsu og velferð allra ein- staklinga þarf að virkja þá alla til heilsusamlegra athafna. Skólunum verður í auknum mæli látið það eftir að marka stefnu um slíkt í skólanámskrám en ef fyrirmyndin er ekki til staðar eða stefnan óskýr er hætt við að verkleg framkvæmd og kennsla verði ekki til þess fallin að heilsa nemenda við lok grunnskóla batni frá því sem nú er. ónotAð tækifæri Almennur hluti aðalnámskrár hefur ekki áður gert heilsuhugtakinu eins hátt undir höfði. Drög að námskrá í skólaíþróttum má í raun finna í smækkaðri mynd í almenn- um hluta aðalnámskrár grunnskóla. Í kaflahluta 2.1.5 um heilbrigði og velferð er að finna kjarnann í skólaíþróttum framtíðar. Þar er búið að setja stefnuna en henni er því miður breytt í sérgreinanámskránni þar sem hún fær allt aðra umfjöllun og nálgun. Í stað þess að boltinn sé gripinn á lofti og grunnþáttunum fylgt eftir í útfærslu sérgreina- námskráa, eins og almenni hlutinn kallar eftir, þá er sveigt af braut og tenging við grunnþættina í aðalnámskrá rofin. Í aðalnámskrá segir að starfshættir og aðferðir, sem börn og ungmenni læra, séu undir áhrifum hugmynda sem fram koma í umfjöllun um grunnþættina og að vinnubrögð kennara og annarra, sem starfa í skólum, eigi að mótast af grunnþáttunum þannig að stuðlað sé að sjálfstæði, frumkvæði og þróun í skólastarfi (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012a). Þetta tækifæri er illa nýtt, þótt það sé kjörið til nýsköpunar eins og eftirfarandi orðalag ber með sér: Heilbrigði byggist á andlegri, líkamlegri og félagslegri vellíðan. Það ræðst af flóknu samspili einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Allt skólastarf þarf að efla heilbrigði og stuðla markvisst að velferð og vellíðan enda verja börn og ungmenni stórum hluta dagsins í skóla. (Mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2012a bls. 21) Þetta hlutverk skólans sem hér að framan er nefnt er afar mikilvægt. Á grunnskólaaldri eiga sér stað einna kröftugustu þroskabreytingar á líkamlegu og andlegu atgervi mannverunnar. Hér duga því ekki skólaíþróttirnar einar og sér til að ná markmiðum heilbrigðisyfirvalda. Skólastjórnendur og allir kennarar þurfa að taka höndum saman og auka daglega líkamlega virkni skjólstæðinga sinna. Þeir þurfa að skipuleggja starf sitt á forsendum nemenda en ekki tiltekinna námsgreina eða íþróttagreina. Heilsa og velferð barns eða unglings er það sem máli skiptir. Námsgreinin, íþróttagreinin, hinir ýmsu námsþættir eða leikir eru aðeins tæki til að mæta þörfum og markmiðum barns eða unglings á leiðinni að auknum þroska. Þar sem hinn almenni hluti aðalnámskrár gerir heilbrigði og velferð einstaklega góð skil þurfa þeir sem vinna að drögum að nýrri námskrá í skólaíþróttum að yfirfæra þann boðskap og setja hann í nýjan búning innan sérgreinarinnar. Þeir þurfa að þora að breyta um stefnu í þágu fjöldans og fylgja þeirri hugsjón að skólinn eigi að vera vettvangur og aflvaki heilsueflingar frá fyrsta degi í fyrsta bekk til þess síðasta í tíunda bekk. Þessu markmiði má ná á ýmsan hátt en þungamiðjan getur aldrei orðið keppni í gegnum íþróttagreinar. Ný námskrá í skólaíþróttum þarf að leggja grunn að framfara- skrefum í heilsurækt og setja mark sitt á heilsueflandi grunnskóla í í upphafi 21. aldar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.