Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 195

Uppeldi og menntun - 01.07.2012, Side 195
Uppeldi og menntUn/icelandic JoUrnal of edUcation 21(2) 2012 195 katrín bJörg ríkarðSdÓttir kröfur um réttindi þeirra fléttuðust saman. Hún varpar fram þeirri tilgátu að kvenna- skólarnir hafi í senn verið staður vitundarvakningar og andófs, krossgötur þar sem gamlar og nýjar hugmyndir mættust. Þannig hafi skólarnir annars vegar viðhaldið ríkjandi hugmyndum um hlutverk og eðli kvenna, um köllun þeirra sem mæður og húsmæður, og ýtt undir nýjar hugmyndir og andóf. Þá setur hún í kaflanum fram tilgátu um andstæðar myndir kvenleika sem hún kallar annars vegar styðjandi kven- leika og hins vegar úrhraks-kvenleika. Þessir mismunandi kvenleikar voru afsprengi ólíkra hugmyndaheima og orðræðu en höfðu mikil áhrif á konur og sjálfsverund þeirra. Fjórði kafli heitir Endurskilgreining á hlutverki kvenna 1850–1903. Erla Hulda leit- ast þar við að svara því hvað falist hafi í endurskilgreiningu á samfélagslegu hlutverki kvenna og hvernig hún hafi haldist í hendur við nútímavæðingu samfélagsins. Einnig er velt upp þeirri spurningu hvaða þátt menntun og kvennaskólar hafi átt í sköpun nútímakonunnar. Í fimmta og síðasta kaflanum dregur Erla Hulda saman niðurstöður rannsóknar sinnar. Þar kemur m.a. fram að þær miklu umræður sem urðu um menntun kvenna og kvennaskóla hafi haft mikil áhrif á hugmyndir um kyngervi þar sem þær gáfu tilefni til endurskoðunar á hlutverki kvenna. Kvennaskólarnir hafi í senn ýtt undir ríkjandi hugmyndafræði um eðli og hlutverk kvenna, svokallaðan styðjandi kvenleika, og andófshugmyndir, ókvenlega hegðun og viðhorf. Ólíkt Erlu Huldu hef ég ekki fylgst vandlega með fræðilegri umræðu um sögu kvenna og er því að nokkru leyti eins og leikmaður en ekki sagnfræðingur. Þetta kom þó ekki að sök við lestur bókarinnar þar sem Nútímans konur er vel skrifuð bók og afar læsileg fyrir leika sem lærða. Nálgun Erlu Huldu er mjög persónuleg og hún felur sig ekki í textanum eins og fræðimenn gera svo gjarna. Þetta er skemmtileg nýbreytni sem gerir það að verkum að lesendur fá að kynnast því betur en ella hvernig hún nálgast heimildir sínar og kemst að niðurstöðu. Áhugafólk um sögu íslenskra kvenna og mótun kyngervis ætti ekki að láta bókina framhjá sér fara. Efni hennar á ekki síður erindi til kennara og annarra þeirra sem sinna menntun drengja og stúlkna nútímans. Bókin geymir fróðlegar upplýsingar, ekki síst um sögu kvennaskólanna og menntunar kvenna. Hún er því mikilvægt inn- legg í íslenska kvennasögu og sögu menntunar. Í bókinni Nútímans konur hlýtur að vera saman komið ítarlegasta yfirlit um menntun íslenskra kvenna og mótun kyn- gervis sem hingað til hefur verið gefið út. um hÖfundinn Katrín Björg Ríkarðsdóttir (katrinbr@simnet.is) starfar sem framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar Akureyrarbæjar. Hún er með BA-próf í sagnfræði frá Háskóla Íslands og M.Ed.-próf í menntunarfræði með áherslu á kynjajafnrétti frá Háskólanum á Akureyri. Rannsóknir hennar hafa snúist um kvennasögu og kynjaskiptingu í námi og störfum.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.