Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Qupperneq 11
ÞRENGT AÐ VONDMNI
kosti sem uppi eru í tímanum, en rithöfund-
ar kjósa flestir að draga það sem rækilegast
fram, að hverju faðirvori má snúa upp á and-
skotann. I hverjum nýmælum, tæknilegum
og pólitískum, eru möguleikar sem endað
geta í martröð.3
Þegar fyrir 1950 er orðin til í dystópískum
verkum mjög útbreidd hrollvekjuformúla.
Lesandinn er staddur í samfélögum sem hafa
náð næstum því fullkomnum árangri í því að
gera alla hlýðna og auðsveipa með góðu eða
illu. En samt kemur til uppreisnar. Einhver
einn maður neitar því að ríkjandi skipulag sé
hið eina sem til greina kemur. Hann vill
bjarga því sem glatast hefur. Hann vill muna það sem áður gerðist og
þekkja það hf sem áður var lifað. Hann vill lesa bækur og njóta lista, þótt
listum og bókmenntum hafi verið útrýmt. Og hann vill elska á gamla
vísu: Hann er Adam sem hittir sína Evu, þótt í Helvíti sé, en þau skapa
sér um stvmd Paradís þar sem þau njóta ástar sem einlægrar tilfinningar
- án skömmtunarseðla, tilskipana eða skyldulauslætis eins og í sögum
Zamjatins, Orwells og Huxleys. Þessi síðasti maður og síðasta kona í
heimi sakna líka leitar og efa og jafhvel þjáningar, með öðrum orðum:
Þau sakna þess lífs sem höfundamir þekkja nú og hér. Uppreisn þeirra
og ást þeirra er afturhvarf til þess lífs sem menn hafa alltaf lifað á jörð-
inni. Til hins sanna og upprunalega. Sá sem lifir í dystópíu gerir sér jafn-
vel hvunndagslegustu athafnir og hluti, sem menn taka varla eftir í
venjulegu lífi, að efni í nýja útópíu: Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur. Dvstópíur verða á sinn hátt afar íhaldssamar bókmenntir.
Yfirskrift þeirra gæti verið: Gangið hægt inn um hlið sem á stendur Nýr
heimur. Eða: Gangið alls ekki inn.4
Krishan Kumar vdkur í riti sínu um staðleysur á nýliðinni öld að
3 Sjá m.a. Ami Bergmann 1984 og Mark Hillegas.Tfce Futiire as Nightmare (Oxford
University Press, Oxford, 1967); Kingsley Amis. New Maps ofhlell (Harcourt, New
York, 1960).
4 Nicolas Berdayev. „Democracy, Socialism and Theocracy“ í The End of Time,
(Sheed, London, 1933); Aldous Huxley. Brave Netv World Revisited (Harper & Row,
New York, 1958); Robert Nisbet. „1984 and the Conservative Imagination" í Irwing
Howe (ritstj.). 1984 Rrcisited (Harper&Row, New York, 1983).
9