Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 64
JÓN ÓLAFSSON
og sósíaldarwinisma hinsvegar sé að finna and-útópíska og útópíska
túlkvm þróunarkenningarinnar. Sósíaldarwinismi leiðir útópískt lögmál
um framfarir af kenningunni en pragmatismi leiðir nýtt samhengi þekk-
ingar og þekkingaröflunar af þróunarkenningunni. Þetta samhengi
greinir sig ffá hinu eldra í því að notkun þekkingarinnar réttlætir hana
frekar en verufræðilegur grunnur hennar.9
Dewey hélt því fram í grein sinni „The Influence of Darwinism on
Philosophy“ að með riti sínu Uppruna tegundanna hefði Darwin umturn-
að rökfræði þekkingarinnar og í raun lagt grunninn að nýrri rökfræði.
Heimspeki sem tekur mið af Darvdn „hafnar rannsókn sem beinist að
því að finna altækt upphaf og altækan endi en snýr sér þess í stað að sér-
tækum gildum og hinum sérstöku aðstæðum sem geta þau af sér“.10 Með
þessu átti Dewey við að heimspekin mættd ekki snúast um að leita að
einsleitum grundvelli eða uppsprettu allrar þekkingar. Hann hélt því
einnig fram að sú heimsmynd sem geri ráð fyrir að hlutunum hljóti af
nauðsyn að vera skipað á einn veg ffekar en annan geti ekki samræmst
þessari nýju rökffæði. Við getum ekki gengið út ffá grunnfyrirbærum
eins og til dæmis mannlegu eðli og notað það svo til að skýra hátterni
manna. Sú tilhneiging að beita heildarskýringum af þessu tagi veldur því
að áliti Deweys að menn neita að horfast í augu við reynslu sína, neita
að meta hlutina út ffá gildi þeirra hér og nú en leitast þess í stað við að
meta þá út frá öðrum, huldum, forsendum.11 Markmið þekkingar í aug-
um Deweys er að auka stjórn manna á eigin veruleika. En þetta mark-
mið hlýtur alltaf að miðast við veruleikann hér og nú, vísindin glíma við
veruleikann sem þau eru sprottin úr. Mikilvægt er því að gera greinar-
mun á því að bæta stöðu mannsins í heiminum og því að gerbreyta
New York) bls. 56-57; Atli Harðarson 2001, Af jarðlegum skilningi (Háskólaútgáfan,
Reykjavík) bls. 104. Sjá einnig Richard Dawkins 1986, The Blind Watchtnaker {Long-
man, Harlow, Essex).
9 Eg ætla ekki að fjalla um sósíaldarwinisma hér, en skemmtilegar útleggingar á lög-
málum þróunarinnar ervíða að finna, til dæmis í riti F.S.C. Schillers 1910, Riddlesof
the Sphinx (Swan Sonneschein & Co., London) bls. 108-135 og Mike Hawkins
1997, Social Darwinisim in European and American Thought 1860-1945 (Cambridge
University Press, Cambridge).
10 John Dewey 1909, „The Influence of Darwinism on Philosophy", The Essential De-
wey, I. bindi, ritstj. Larry Hickman og Thomas Alexander (Indiana University Press,
Bloomington,1998) bls. 43.
11 Sjá m.a. Tom Burke 1994, Dewey's New Logic. A Reply to Russell (University of Chi-
cago Press, Chicago) bls. 22.
62