Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 114
GOTTSKALK Þ. JENSSON
ar Jónsson stóð sig vel sem Kreon og
Halldóra Björnsdóttir var ekki síðri í
hlutverki Antígónu, uppreisnarmanns-
ins með alpahúfuna. Olíkt sýningunni
árið 1969, sem var mínimalísk og án
augljósra skírskotana til eins eða neins,
nema þá til módernismans sjálfs, re\mdi
leikstjóri sýningarinnar árið 2000 að
koma fyrir skírskotvmum til átakanna á
Balkanskaga, og lýsti þ\ i yfir í viðtali
við Hávar Sigurjónsson, í Morgunblað-
inu hinn 24. desember, að verkið hefði
komið honum fýrir sjónir „nánast eins
og það hafi verið pantað af Amnesty
International. Það hefur svo mikla vísun í alla umræðu um samvisku-
fanga, hvað valdsmönnum leyfist og hvað þeir geta farið fram úr siimi
eigin mennsku“.
En meðvitaðar vísanir aðstandenda sýningarinnar árið 2000 til sam-
tímans, þótt þær kæmust að mestu leyti til skila, virtust ekki vekja jaffi
öflug viðbrögð og sýningin í Iðnó 1969. Halldóra Friðjónsdóttir skrifar
leikdóm í DV28. desember 2000 sem minnir að takmörkuðu leyti á leik-
dómana árið 1969: „Við horfum nánast daglega á fréttamyndir af blóð-
ugum átökum þar sem bræður berjast (sbr. fyrrum Júgóslavíu) og hvar-
vetna blasir við okkur dæmalaus hroki þeirra sem valdið hafa. Sem betur
fer eru líka ennþá Antígónur á meðal okkar, manneskjur sem kjósa að
fylgja eigin sannfæringu og samvisku jafnvel þó það kosti þær lífið“.
Halldóra nefhir einnig „Grikkland á tímum herforingjastjórnarinnar, og
ljósmyndir af hinum föllnu sem minna á leit chileanskra kvenna að
horfnum ástvinum“, auk þess sem hún sér vísanir til píslarsögu Krists í
þjáningum Antígónu. I hinum leikdómnum, sem er eftir Soffíu Auði
Birgisdótmr og birtist í Morgunblaðinu sama dag, er ekki minnist beint
á skírskotanir til átakanna á Balkanskaga. Soffía Auður les hins vegar
„nútímavæddan“ búning Antígónu sem vísun til „andspyrnuhreyfingar-
innar frönsku í síðari heimsstyrjöldinni“.
Hvorugur ritdómarinn gerir sér mat úr pólitískum skírskotunum í
sýningunni á forsendum kynjapólitíkur. Það er auðvitað sláandi við
þennan samanburð að aðeins karlar skrifa leikdóma um áramótin
I 12