Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 45
EINRÆKTUN MANNA
glasafrjóvgun er framkvæmd, þarf fyrst inntöku frjósemislyfja sem er erf-
ið líkamlega jafnt sem andlega. Eftir það þarf aðgerð til að ná í eggin og
til að koma þeim fyrir aftur. Síðan þarf konan að vera undir 40 vikna
meðgöngu búin.
Afritun „efdrsóknarverðra“ fyrirmynda úr daglegu lífi, hvort sem það
væri í göfugum tilgangi eða til illra verka (sbr. Gandhi og Hitler), virð-
ist því ekki raunhæfur möguleiki. Annars vegar vegna þess að einræktað-
ur einstaklingur yrði langt frá því að verða önnur útgáfa af fyrirmynd-
inni og hinsvegar vegna þess ferhð sjálft er flóknara í framkvæmd en
hugmyndir á borð við „hundruð af Gandhi“ gefa til kynna.
Einræktun myndi ekki leiða til þess að einstaklingarnir yrðu ónáttúru-
legri en þeir sem fyrir eru, né til þess að umhverfið verði krökkt af fólki
sem væri til í mörgum eintökum. Hinsvegar er hér ekki verið að útiloka
að einræktun væri hægt að nýta til að fremja skipulögð myrkraverk gegn
mannkyni eins og margir óttuðust þegar fyrst fréttist af þeim möguleika
að einrækta úr fullorðnu spendýri. Hver gætu slík myrkraverk verið? Að-
ferðir, markmið og tól nasista á sínum tíma sýna okkur fram á að engin
takmörk eru fyrir því sem hægt er að ímynda sér í þeim efnum. Þess-
vegna er kannski meiri ástæða til að óttast afleiðingar þess að þeir nái
völdum sem hafa ill áform frekar en að óttast afleiðingar uppgötvana eða
nýrrar tækni. Það er mannshugurinn við stjórnvölinn sem við þurfum að
óttast öðru ffernur. Þess vegna getur einræktun, eins og ýmislegt annað,
verið tæki sem hugsanlega mætti nota í illum tdlgangi, sé það á annað
borð ríkjandi hugarfar og einlægur ásemingur. En það getur ekki talist
einkenni á aðferðinni sjálfri.
Hvers vegna einræktun manna?
En ef litdð er framhjá því að eftirsóknarvert getd þótt að afrita tiltekna
einstaklinga, hvaða tdlgangur gemr verið með því að einrækta fólk?
Astæðum þess að einrækmn er talin geta orðið eftirsóknarverður kostur
fyrir mannkvTiið má í grófum drátmm skipta í tvennt.
Annars vegar má nýta aðferðina í læknisfræðilegum tilgangi og hins-
vegar tdl þess að eignast böm. Þá er átt við barneignir af sömu ástæðum
og fólk eignast böm í samfélagi okkar í dag, en ekki með þau annarlegu
markmið í huga sem greint var frá að ofan.
Hugum fyrst að hinum læknisffæðilega tdlgangi. Hugmyndin er sú, í
43