Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2002, Blaðsíða 30
ULFHILDUR DAGSDOTTIR
ar og skrifa heldur sýna einnig hvemig slík samlíking eða skörun getur
vísað til affnyndunar í orðræðu kvenna og tekið á sig afskræmda mynd.18
Karlleg sköptm er mjög áhugaverð í sambandi við umræðuna um hina
einræktuðu fóstum'sa, sem bera skýr merki þessarar karllegu útópíu um
sköpun Kfs - utan eða í stað kvenlíkamans. Aherslan á að afkvTæmið beri
sýnileg ummerki „föðurins“ kemur svo fram í umræðum um erfðabreytt
fóstur sem hafa til að bera andlega og líkamlega eiginleika sem hin (vest-
ræna, hvíta) karllega orðræða skilgreinir sem jákvæða. Eg nota orðið
„karllegur“ hér í yfirfærðri merkingu, ekki aðeins með tilvísun til þess að
meirihluti þeirra vísindamanna sem vinna að líftækni eru hvítir miðaldra
karlar heldur einnig með tilliti til tvíhyggjuandstæðunnar náttúra/tækni,
þar sem konan (og ólíkir kynþættir) stendur fyrir náttúruna (sem þarf að
temja) og (hvíti) karhnn fyTÍr tæknina (sem temur). Þær konur sem vinna
að líftækni gangast inn á þessa karllegu orðræðu.19
Andstæða náttúru og tækni er reyndar dregin í efa í sæborgafræðum
og sæberskáldskap.20 Því eitt helsta minni skáldskapar sem fæst við sæ-
borgir er að sæborgin er óhlýðin og lætur illa að stjórn. Oll þau sæborg-
sku skrýmsli sem hér hafa verið nefhd eiga það sameiginlegt að vera ill-
viðráðanleg og hafa tilhneigingu til að brjótast undan valdi skapara síns.
Að auki bera þau flest merki ákveðinna yfirburða, allavega hvað varðar
styrkleika og áhrifavald: Góleminn er ósigranlegur og hann verður að
Robert Louis Stevenson, New York, Signet Classic, NAL Penguin, Inc. 1978, þýð.
úd. Sjá Huet, The Moiistrous hnagination, bls. 162.
18 Sjá einnig grein Susan Stanford Friedman, „Creativity and the Childbirth Aleta-
phor: Gender Difference in Literarv' Discourse", í Speakmg of Gender, ritstj. Elaine
Showalter, New York og London, Routledge 1990. Sjá einnig Barbara Johnson,
,„\ly Monster/My Self‘ í A World of Dijference, Baltimore og London, The John
Hopkins University Press 1987.
19 Þessi umræða um kynþaetti er einnig mjög mikilvæg fvTÍr umfjöllun um klónun
fóstra og líftækni eins og Donna Haraway hefur bent á, bæði í greinum sínum í Sim-
ians, Cyborgs and Women: The Reinvention of Nature, London, Routledge 1991 og
Modest_ Witness®Second_Millennium.FemaleMan a_Meets_OncoMouse Feminism and
Technoscience. New York, Routledge 1997. Því miður gefst ekki pláss til að ræða þessa
hlið málsins hér. I greinum Spallone og Nelly Oudshoom, „The Decline of the
One-Size-Fits-All Paradigm, or, How Reproductive Scientists Tr\’ to Cope with
Postmodernity“ er bent á hvemig vísindakonur hafa tekið upp karllega orðræðu í
tunræðunni um líftækni og getnaðarvarnir.
20 Sjá sérstaklega bækur Donnu Haraway, en einnig greinarnar í Betu'een Monsters,
Goddesses and Cyborgs. Skáldsögur sæberpönkarans Jeff Noon em kannski sérstaklega
markverðar fyrir að blanda náttúm og tækni, en höfnun á slíkum andstæðukerfum
má sjá í flestöllu sæberpönki.
28