Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Blaðsíða 140
ALMADÍS KRiSTinSDÓTTiR
140
safnkosti og mikilvægi rannsókna og miðlunar, safngestum til fræðslu og
skemmtunar. Þetta þyrfti að rannsaka gaumgæfilega og koma með tillögur
að úrbótum þannig að sjónrænn menningararfur safna nýtist til kennslu á
öllum skólastigum og að safnkostur sé aðgengilegur öllum, í fræðslutil-
gangi án tilkostnaðar, óháð staðsetningu hans.
Þróun safnfræðslu
Í bókinni Museum Origins er ljósi varpað á ríflega aldagömul „vandamál“
í safnastarfi sem mörg hver eiga enn við í dag. Spurningar eins og:
„Hvernig er tilgangi safna þjónað sem best?“ •
„Fyrir hverja eru sýningar – almenning? Sérfræðinga?“•
„Eru safnheimsóknir viðbót við hefðbundið nám eða er safn •
námsefni í sjálfu sér?“
Þessar spurningar eru reifaðar og ræddar út frá ólíkum sjónarhornum.25
Uppruni safna tengist grískri menningu því að fyrstu söfnin voru eins
konar hof sem áttu að veita gestinum þekkingarlegan innblástur.26 Orðið
„museum“ er dregið af gríska orðinu „museion“ sem vísaði til grískra
gyðjuhofa: Hið klassíska gríska gyðjuhof var staður ígrundunar og heim-
spekilegra vangaveltna. Eitt þekktasta safn úr hinum forna heimi,
Alexandríusafnið, „varðveitti“ m.a. lærða menn sem hluta af sínum safn-
kosti samkvæmt lýsingum á þeim arkitektúr er sameinaði þá í safninu.
Prestur var í forsvari fyrir safnið og grafreitir virðast einnig hafa tilheyrt
því og því er ekki að undra að söfnum sé á stundum líkt við grafhýsi.
Alexandríusafnið er talið vera hið allra fyrsta safn sem um getur og inn-
blástur þeim sem stofnuðu söfn á endurreisnartíma 14., 15. og 16. aldar.27
Söfn í nútímaskilningi urðu til í Evrópu á 17. öld en það fyrsta mun hafa
verið safn sérkennilegra og sjaldgæfra hluta (e. cabinet of curiosities) sem
Elias Ashmole gaf Oxford-háskóla í Cambridge.28 Utan um gjöfina, sem
háskólanum var færð árið 1677, var reist tilkomumikið súlusafn og er það
25 „Section ii: Museum Philosophy“, Museum Origins: Readings in Early Museum
History and Philosophy, ritstj. Hugh Genoways og Mary A. Andrei, Walnut Creek,
California: Left Coast Press, 2008, bls. 49.
26 n. H. Winchell, „Museums and their purpose“, Museum Origins, bls. 269–273,
hér bls. 271.
27 Strabo, „Geography“, Museum Origins, bls. 15–16, hér bls. 15.
28 Timothy Ambrose og Crispin Paine, Grunnatriði safnastarfs. Fyrra hefti, bls. 13.