Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2010, Blaðsíða 29
29
ÞEKKinG, ViRÐinG, VALD
á nýjustu tækni og vísindum, náttúrusögu og listum.9 Ferðalög þeirra og
bréfaskipti ófu vef þekkingar um heimsálfuna. Fyrstu furðustofunni var
komið á laggirnar í Vín árið 1550. Í eina og hálfa öld voru þær aðalmálið,
tíska sem fangaði og tókst á við félagslegt, pólitískt og efnahagslegt umrót
síns tíma. Tískan rann sitt skeið við upphaf 18. aldar og á fáeinum árum
hurfu furðustofurnar eins snögglega og þær höfðu tekið Evrópu með
trompi.10
Menn hefðu orðið að ferðast vítt og breitt um veröldina til þess að
berja augum í sínu upprunalega umhverfi þá hluti sem furðustofurnar
drógu saman. Af þeim sökum voru sýnishorn úr náttúru nýja heimsins og
gripir frá íbúum hans mikils metnir. Fjarlægð í tíma, fremur en rúmi, skildi
forngripi frá safnaranum og gestum hans. Stöku munir voru hvorki langt
að komnir né fornir en þóttu stórmerkilegir vegna þess hve „fríkaðir“ þeir
voru, þ.e.a.s. að þeir mörkuðu frávik frá því sem venjulegt gat talist og
voru fáheyrðir í hversdegi safngestanna, t.a.m. einhyrningshorn og van-
sköpuð fóstur, síamstvíburar og tvíhöfða kindur. Slíkur „óskapnaður“ vitn-
aði um almætti guðs, sem gat breytt gangi náttúrunnar ef honum þóknað-
ist. Allir vöktu munirnir „forvitni“ og „undrun“.
Þessa forvitni og undrun sem allt framandlegt, fornt eða fríkað vakti er
rétt að skoða með hliðsjón af stækkandi sjóndeildarhring þessa tíma. Eins
og bókmenntafræðingurinn Stephen Greenblatt hefur haldið fram var
undrunin kjarninn í „upphaflegum viðbrögðum Evrópubúa andspænis
nýjum heimi, og lýsti afgerandi tilfinningalegri og vitsmunalegri upplifun
frammi fyrir róttækum mismun.“11 Undrunin sem framandleikinn vakti
var einnig vakin af mismun hins forna frá viðmiðum samtímans. Blómaskeið
fornfræðinnar hófst hér við upphaf nútímans. Forvitnin um fyrri tíð nærð-
ist m.a. á nýrri stöðu móðurmálsins í kjölfar siðaskiptanna, leit virtúósanna
að virðingarhlutum og nýrri viðleitni stjórnvalda til að réttlæta völd sín
með skírskotun til sögunnar.
Þekkingarsköpun virtúósanna speglaði ört stækkandi sjóndeildarhring-
inn með því að þjappa fjölbreytni heimsins saman og stilla henni upp til
9 Marjorie Swann, Curiosities and Texts. The Culture of Collecting in Early Modern
England, Philadelphia: University of Pennsylvania Press, 2001, bls. 4.
10 Krysztof Pomian, Collectors and Curiosities, Paris and Venice, 1500–1800; Arthur
MacGregor, Curiosity and Enlightenment; Patrick Mauries, Cabinets of Curiosities;
Dominik Collet, Die Welt in der Stube.
11 Stephen Greenblatt, Marvellous Possessions. The Wonder of the New World, Chicago:
The University of Chicago Press, 1991, bls. 14.