Skírnir - 01.01.1977, Page 63
SKÍRNIR MENNINGARSÖGULEG DÆMI 61
fáanleg var. Að sá sem fóstrar barn fyrir annan sé þar með að
lítillækka sig virðist að vera hreint út í hött, sem sést einmitt
vel af dæmunum í Njálssögu.
Þegar Njáll á Bergþórshvoli býður Höskuldi syni Þráins Sig-
fússonar fóstur, en Skarphéðinn Njálsson hafði vegið Þráin,
þá er það gert í þeim tilgangi, líkt og Jón Loftsson, að búa enn
betur um hnútana en gert hafði verið með fébótum fyrir vígið
á sínum tíma. Njáll á von á því að Höskuldur sonur Þráins
hefni fyrir vígið þegar hann hefur aldur og getu til, og þetta
vill Njáll koma í veg fyrir. Það er ekki snefill af góðvild eða
góðgirni í þessum viðbrögðum Njáls, aðeins slóttug hvötin að
bjarga sér og sínum. Njáll fer að með klókindum, lætur dóttur-
mann sinn, Ketil í Mörk, sem og var bróðir liins vegna Þráins,
taka Höskuld bróðurson sinn í fóstur og síðar fer hann frá
Katli til Njáls, nokkurs konar framlenging fóstursins. Þetta
virðist eina leiðin til að koma málinu í höfn. Njáll hefur ekki
gert ráð fyrir að móðirin féllist á þessi málalok. Njáll situr
yfir Katli heilan dag og vissi enginn hvað þeim fór á milli.
Virðist ljóst að Ketill hefur ekki verið fús að ganga erinda
Njáls enda sviksamleg í meira lagi. Sagan lætur Höskuld
taka boðinu feginsamlega og fer hið besta á með honum
og öðrum á Bergþórshvoli. Sagan getur þess ekki að Njáll
hafi veitt Höskuldi sérstaka kennslu eins og hann hafði gert
þegar hann bauð Þórhalli Ásgrímssyni fóstur og gerði hann
að mesta lögmanni á íslandi eða þriðja mesta lögmanni á ís-
landi eins og stendur á öðrum stað í Njálu. En það er ein-
mitt þessi kennsla sem er sérstætt atriði í sambandi við fóstur
að fornu. Grágás nefnir ekki lærdóms- eða kennsluskyldu, en
greinilegt er af dæmunum hér að framan að fósturbarn er engu
síður til læringar en framfæris. Grágás fjallar um lögfóstur og
skal barn vera í fóstri frá átta ára aldri til sextán ára og komi
greiðsla fyrir.2 Það hefur verið algengt að fóstra börn fyrir aðra.
Barn hefur oft verið tekið í fóstur af hjartagæsku eða frænd-
semi og þá án meðgjafar eins og allir þekkja. Og svo hefur
fóstur verið notað í pólitískum tilgangi bæði almennum og
einkalegum eins og áður er vikið að. (Hér verður ekki talað um
fóstbræður = svarabræður.)