Skírnir - 01.01.1977, Blaðsíða 146
144
ÞÓRHALLUR VILMUNDARSON
SKÍRNIR
may only be an adaptation of Portuguese Ghaime, corresponding to Englisli
James, and not originally the Hebrew word mentioned above. This, however,
is just a suggestion without sufficient proof. But the main question is
whether it could be assumed that a Jew, named Chaim (Hayyim), should
have reached Iceland in the 13th century and should liave maintained his
Hebrew name while converting his faith. This to me and to some colleagues
I have consulted seems unlikely.
Cha(j)im er hinn hefðbundni ritháttur nafnsins, er það er
skrifað latínustöfum, en Hayyim er hins vegar nútímaritháttur.
Hebreska orðið hayyim kemur víða fyrir í frumtexta Gamla
testamentisins, og getur merking þess verið með þrennum
hætti: 1) líkamlegt líf (t. d. Gen. 27:46, en dæmi um þá merk-
ingu orðsins skipta hundruðum), 2) lífshamingja, velferð, ham-
ingja, jarðnesk velgengni og andleg blessun (Sálm. 133:3, en
einkum algengt í þeirri merkingu í Orðskviðunum: 4:22, 10:16,
16:15, 19:23, 21:21 (hér eru hugtökin líf, réttlæti og heiður svip-
aðrar merkingar), 22:4 (hér eru auður, heiður og líf svipaðrar
merkingar)), 3) lífsviðurværi (Orðskv. 27:27).44
Af tilefni þeirrar hugmyndar, sem Tur-Sinai prófessor drepur
á, að Chaitns-nafn kunni að vera eftirlíking portúgalska Jakobs-
nafnsins Jairne (sbr. fr. og e. James, af seinni alda lat. Jacomus,
er notað var við hlið Jacobus), hef ég lagt þá spurningu fyrir
sérfróða menn um spænsk fræði, þá prófessorana dr. L. P.
Harvey í Lundúnaháskóla og dr. Joaquin de Entrambasaguas í
háskólanum í Madríd, hvort þeir telji nokkrar líkur á því, að
Chaims-nafn Gyðinga og Ólafs chaims geti verið runnið frá
Jako bí-nafni á Íberíuskaga, en niðurstaða þeirra beggja er nei-
kvæð af hljóðfræðilegum og málsögulegum ástæðum.
En hvað sem því líður, er hér komið í leitirnar orð, sem
staf fyrir staf samsvarar viðurnefni Ólafs chaims og er í viðbót
upp komið sem mannsnafn suður í álfu örugglega um líkt leyti
og sennilega nokkru fyrr en Ólafur var uppi.
7
Engin leið er að komast að öruggri niðurstöðu um, með hverj-
um atvikum Ólafur Höskuldsson hefur hlotið hið óvenjulega
viðurnefni sitt, enda er alkunnugt, hve margbreytileg tilefni