Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 6
G u ð n i E l í s s o n 6 TMM 2012 · 4 Þjóðkirkjuna að ætla [megi] að þau hafi litað málflutning hans í garð Van- trúar“. Vantrú frábiður sér „afskræmingu“ á félagsskapnum og farið er fram á að „siðferði þessa kennsluefnis verði metið í ljósi þeirra athugasemda sem við komum hér á framfæri“.9 Þó er kæran um margt hin undarlegasta þegar farið er að rýna í hana. Bjarni Randver er t.a.m. kærður fyrir að birta uppi á tjaldi án athugasemda þrjár síður úr frægu trúleysisriti prófessors Níelsar Dungals Blekkingu og þekkingu (bls. 465, 500 og 501).10 Það stöðvar vantrúarfélaga þó ekki í því að leggja fram kæru sem byggir á því sem Bjarni Randver kunni hugsanlega að hafa sagt á meðan glærurnar þrjár birtust á tjaldinu: „Þegar kemur að prófessor Níels Dungal og bók hans „Blekking og þekking“ þykir okkur sem Bjarni Randver missi sjónar á aðalatriðum og umfjöllun hans og val á til- vísunum einkennist frekar af andúð og áróðri en upplýsingu og fræðslu“ (3). Þáttastjórnandinn Egill Helgason var einn þeirra sem tók undir sjónarmið vantrúarfélaga og sagði að því yrði „ekki neitað“ að glærur Bjarna væru „ansi hæpnar“. Bjarni afgreiddi Níels Dungal „með því að vísa í hrein aukaatriði í bók hans […] Helgi Hóseason [fái] sömu útreiðina, það er vísað í furðu- legustu kaflana í skrifum hans“. „Þetta virkar frekar lágkúrulegt“ bætir Egill við, en færir ekki frekari rök fyrir skoðun sinni.11 Í huga vantrúarfélaga virðast nemendur Bjarna að sama skapi viljalausar strengjabrúður sem beygja sig undir vilja læriföðurins er dælir eitri í allar áttir. Ranghugmyndirnar rista æði djúpt og taka á sig sérkennilega mynd þar sem mikið er gert úr valdi og ítökum Bjarna Randvers. Hann er voldugur andstæðingur sem elur á misklíð og ýtir undir fordóma í garð trúleysis – og jafnvel í garð hinna ólíku nýtrúarhreyfinga sem hann tekur fyrir í nám- skeiðinu.12 Síðastnefnda kenningin er ekki síst forvitnileg fyrir þær sakir að þar er helsta hugmyndafræðingi og stefnumótanda Samráðsvettvangs trúfélaga ætlað að eitra umræðuna um nýtrúarhreyfingar á bak við tjöldin.13 Um leið horfa kærendurnir framhjá jákvæðum vitnisburði nemenda úr námskeiðinu sem sumir eru sjálfir trúleysingar. Þeir horfa framhjá greinar- gerðum akademískra sérfræðinga sem lásu glærurnar vandlega, ekki síður en svar Bjarna og kæruna sem það byggist á. Flestir þessara sérfræðinga þekktu ekkert til Bjarna Randvers áður og líklega er rétt að taka fram – í ljósi ríkjandi tíðaranda – að margir þeirra sem skrifuðu greinargerðirnar eru, rétt eins og ég, yfirlýstir trúleysingjar. Vantrúarfélagar horfðu þó ekki aðeins framhjá fræðilegum forsendum námskeiðsins. Síðast en ekki síst horfðu þeir framhjá bréfi Bjarna til nemenda sinna um það hvernig á að nálgast glærurnar og námsefnið allt, en bréfið var sent út tveimur mánuðum áður en félagsskapurinn Vantrú leggur fram kæru sína. Í bréfinu sem dagsett er 6. desember 2009 minnir Bjarni á ýmis grund- vallar atriði vegna prófundirbúnings og bendir á að alls ekki sé nóg að lesa glærurnar; þær séu „yfirborðskenndar í mörgum efnum og [nemendur fái] verulega fyllri mynd af öllu með því að lesa þá bókakafla og þær greinar sem
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.