Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 58

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2012, Side 58
Þ o r s t e i n n Þ o r s t e i n s s o n 58 TMM 2012 · 4 mennta lega umfjöllun um Tímann og vatnið sem þá einkunn á skilið og er að mörgu leyti einhver sú besta enn að mínum dómi. Hún fjallar að vísu einungis um fyrri gerð flokksins, þá sem út kom 1948. Afar mikilvæg textafræðileg rannsókn á handritum Steins og tilurðar- og útgáfusögunni kom síðan árið 1971 frá hendi Sveins Skorra Höskuldssonar.22 Við hana hljóta allar seinni rannsóknir á ljóðaflokknum að styðjast. *** Nú er þess að geta að til eru skýringar Steins sjálfs á fáeinum ljóðum Tímans og vatnsins. Í viðtali við Matthías Johannessen sem birtist í Nýju Helgafelli 1958 sagði hann til dæmis: Það er engin formbylting í þessum kvæðum. Tíminn og vatnið er, eins og þú veizt sjálfur, varíeraðar terzínur. Það er ákaflega gamalt form og þrælklassískt. Terzín- urnar í Tímanum og vatninu eru ekki alltaf reglulegar, það er öll formbyltingin. Ljóðaflokkurinn í heild er upphaflega hugsaður sem ballett, byggður á goð- og helgisögnum. Jú, það var nú meiningin, hvað sem þú segir. Eitt kvæði studdist t.d. við Veda-bækurnar, annað við sagnir um Parsival og Graal [„Gagnsæjum vængjum flýgur vatnið til baka“] – og enn annað við för Odysseifs [„Vatn, sem rennur um rauðanótt“]. Og í öðru viðtali við Matthías, hinu óviðjafnanlega Miðnætursamtali: Ég hef tekið eftir því, að Tíminn og vatnið er mjög misskilin eða réttara sagt óskilin bók. Upphaflega hugsaði ég mér þennan ljóðaflokk sem texta að ballett, ef hægt er að segja sem svo, í nánum tengslum við ákveðnar helgisagnir og þjóðsögur. Þetta virðist enginn hafa gert sér ljóst og sennilega ég ekki heldur [leturbr. hér]. Í raun og veru gafst ég upp við þetta fyrirtæki í miðjum klíðum, og útkoman er þar af leiðandi dálítið öðru vísi en til var ætlazt.23 Hér höfum við þá frá fyrstu hendi kærkomnar upplýsingar: að form Tímans og vatnsins sé varíeraðar terzínur og bálkurinn hafi upphaflega verið hugsaður sem balletttexti, byggður á goð- og helgisögnum. Nánar tiltekið Vedabókunum, Gralsögnunum, Ódysseifskviðu og fleiri heldri ritningum veraldar. Ýmsir hafa litið á þessi orð Steins sem lykil að ljóðaflokknum, þó skáldið segðist reyndar hafa gefið ‚fyrirtækið‘ upp á bátinn. Þannig skrifaði Matthías Viðar Sæmundsson: Í ljóðabálkinum er lítið um beinar tilvísanir í daglegan reynsluheim, málnotkun er órökleg, efnislegir og hljómrænir þættir teknir fram yfir merkingu; skynhrif skipta og meira máli við lesturinn en röklegur skilningur. Engu að síður er bálkurinn eitt hefðbundnasta bókmenntaverk á íslenskri tungu [leturbr. Matthíasar Viðars]. Hann er hlaðinn vísunum í menningararf og goðsagnir. Hins vegar virðist hann vera abstrakt af því samband hans við annað er ekki augljóst heldur óljóst og torrætt.24
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.