Hugur - 01.01.2015, Page 86

Hugur - 01.01.2015, Page 86
86 Mikael M. Karlsson ingargáfa, að við þekkjum líkamlega hluti og eiginleika þeirra fyrir tilstilli hennar og að þetta séu einu hlutirnir sem unnt sé að þekkja eða hugsa sér – sá maður er í „viðjum fordómanna“. Vitaskuld er slíkur maður óafvitandi um að hann sé í viðjum fordóma; að hans áliti trúir hann einmitt því sem er bersýnilega augljóst. Hann grunar ekki að hann sé svo rammlega bundinn mistökum sem honum urðu á í bernsku að hann gæti ekki einu sinni skilið (því hann myndi óhjákvæmilega misskilja) hinn raunverulega sannleika um hlutina ef honum væri lýst eða hann útskýrður með venjulegum hætti. Til að sjá af hverju svo er, verðum við að líta á hvernig fordómar hafa áhrif á skynsemina; því að það er fyrir tilstyrk þeirrar sálargáfu – og aðeins hennar – að maður getur, samkvæmt Descartes, komist að sannleikanum. Þegar maður vex upp frá bernsku til fullorðinsára þroskast einnig skynsem- in og getur gert vart við sig með þeim hætti sem frumskynsemi bernskuáranna gat ekki. En ef skynsemin þroskast innan þeirra takmarka sem sá öflugi vani sem veldur fordómunum setur henni, er hún að því marki skert: Descartes notar orðin „spillt“, „óhrein“ og „ófullkomin“. Slík skert skynsemi er skynsemi ofurseld „skynjuninni“ – þ.e. aðeins notuð þegar henni er beitt á hugmyndir um líkamlega hluti sem „skynjunin“, minnið eða (oftast nær) ímyndunaraflið lætur í té – og getur því ekki þroskað til fulls sinn eigin sérstaka hæfileika til að láta huganum í té hrein skilningsatriði. Sá maður, sem er fangi fordómanna og hefur slitið barnsskónum, á að geta áttað sig á því að nokkrar hugmynda hans eru eitthvað sem skynsemin, frekar en „skynjunin“, minnið eða ímyndunaraflið, lætur í té og gerir það jafnvel stundum. Hann kemst að því að með því að beita skynseminni af ásettu ráði virðist honum hann geta séð að hugmyndina um einn hlut eða eiginleika megi í sumum tilvikum ráða af hugmyndinni um annan. Í slíku tilfelli kemst hann að þeirri niðurstöðu – eða „afleiðslu“ [demonstratio]8 – (sem er einnig hugmynd) að fyrri hluturinn eða eiginleikinn sé hluti eða þáttur af hinum síðari. Þótt afleiðsla af þessu tagi virðist fanga fordómanna ekki eins tær og hrein og hugmyndir sem „skynjunin“ lætur í té, virðast honum hún nægilega tær og hrein til að hann hallist að því að fallast á hana; þannig viðurkennir hann að skynsemin láti í té þekkingu, að minnsta kosti í sumum tilvikum. En þótt svo sé gerir hann ekki ráð fyrir því að það sé skynsemin sem uppgötvi að eitthvað sé til handan hugsana hans; hann lítur svo á að skyn- semin fáist við slíka hluti aðeins ef henni er beitt á það sem hann hefur komist að með sjálfstæðum hætti að sé til utan hugans, þ.e. fyrir tilstyrk „skynjunarinnar“, að því er hann telur. Við skulum gefa gaum að því að hjá fanga fordómanna lúta hugmyndirnar, sem afleiðsluályktanir spretta upp úr og þar með ályktanirnar sjálfar, að líkamlegum hlutum eða eiginleikum þeirra – því reyni fangi fordómanna að hugsa sér eitthvað, þvingar vaninn hann til að setja sér fyrir sjónir hugmynd um eitthvað líkamlegt. Á sama hátt er það ekki með óheftri innsýn skynseminnar hjá fanga fordómanna 8 Descartes virðist alloft nota orðið „demonstratio“ – hér þýtt sem „afleiðsla“ – í merkingunni „demonstrandum“ eða „theorema“, þ.e.a.s. afleiðsluniðurstaða; sbr. „afleiðsluályktun“ sem merkir annars vegar ferlið að álykta (með afleiðsluhætti) og hins vegar niðurstöðuna sem ályktað er að. Hugur 2015-5.indd 86 5/10/2016 6:45:17 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.