Hugur - 01.01.2015, Page 87

Hugur - 01.01.2015, Page 87
 Efi, skynsemi og kartesísk endurhæfing 87 sem ein hugmynd er leidd rökrétt af annarri. Það væri raunar óhugsandi, því að hugmyndir um líkamlega hluti sem þessari innsýn myndi líklega verða beitt á, eru, eins og við sáum fyrr, óhreinar eða mengaðar og brjóta því í bága við hina hreinu skynsemi. Hin spillta rökfærsla fanga fordómanna tekur á sig mynd eins konar útreiknings sem beitt er á hugmyndir um líkamlega hluti (einkum þá sem gefnir eru í ímynduninni); hún er hliðstæð því að telja þegar við erum að reikna; við að draga upp huglægar teikningar í rúmfræði; og í rökfræðilegum ályktunum („díalektík“) er hún hliðstæð við beitingu formúlukenndra reglna á texta (sem dæmi sjá Reglur X). Þetta er allt mjög frábrugðið beitingu hreins innsæis skyn- seminnar. Samfara spillingu skynseminnar, sem stafar af því að hún er knúin til að fást við líkamlega hluti, fer vanmáttur fanga fordómanna til að ná réttum tök- um á helstu grundvallarforsendum réttrar skynsemi. Eins og Descartes sagði við Burman: Því að hvað varðar almennar frumforsendur og frumhæfingar, til dæmis það er ómögulegt að sami hluturinn sé og sé ekki, þá athuga eða skoða þeir menn sem eru ofurseldir skilningarvitunum, sem við erum allir áður en við leggjum stund á heimspeki, þær … aðeins á afbakaðan hátt; en aldrei einar og sér [in abstracto] og óháð efninu og einstökum hlutum. [AT 5:146] III Þó að fangi fordómanna geri sér það aldrei ljóst er líf hans hreinasta hörmung – þekkingarfræðilega séð. Ekkert sem hann hugsar er í raun tært eða hreint; ekkert sem hann fellst á er satt. Vitaskuld er margt sem honum virðist afar tært og hreint, en það er allt annar handleggur. „Aðeins hinn vitri,“ segir Descartes, „kann að greina réttilega milli þess sem er skynjað með þeim hætti og hins sem sýnist aðeins eða virðist vera tært og hreint“ („Svör við andmælum, VII“: HR II:267). Eins og við sáum geta aðeins hugmyndir um líkamlega hluti komið upp í huga þess sem er fangi fordómanna, hugmyndir sem eru mengaðar, enda þótt þær séu stundum skýrar, tærar og fjörmiklar, og geta því með engu móti verið sannar, samkvæmt Descartes. Sálargáfurnar, sem eru fanga fordómanna uppspretta þekkingar, eru „skynjun“ og skynsemi, og af þeim tveim treystir hann „skynjuninni“ betur. En í rauninni skapar „skynjunin“ aðeins sannfærandi blekkingu. Hún er, eins og við sáum, ekki sjálfstæð sálargáfa, heldur blanda skynjunar og skynsemi, þar sem hvorug er rétti- lega metin að eigin verðleikum. Hin eiginlega skynjun er sálargáfa „tilfinninga“ – hugmynda sem kunna að vísu að vera orsakaðar af hlutum sem eru til, en eru samt ekki skynjanir á slíkum hlutum (líkamlegum eða annars konar); þær eru í rauninni ekki skynjanir á neinu. Skynjanir sýna ekkert og líkjast engu nema sjálfum sér; þær eru aðeins hættir hugsunar. Hugur 2015-5.indd 87 5/10/2016 6:45:17 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.