Hugur - 01.01.2015, Side 130
130 Nanna Hlín Halldórsdóttir
Iðja felur aftur á móti í sér samskipti, felur í sér hreyfingu, felur einmitt í sér að í
raun er ekki hægt að komast á neinn leiðarenda merktan gagnrýni, hún er aldrei
alveg til staðar, ekki hægt að grípa hana, hafa hana í greipum sér.38
En eitthvað þarf að felast í þessari iðju! Þótt hún sé hreyfing þá hefur sú hreyf-
ing stefnu og í því samhengi virðist Butler mikilvægt að skoða hið almenna. Um
það leyti sem Foucault heldur fyrirlesturinn „Hvað er gagnrýni?“ er hann að móta
hugmynd sína um gætni sjálfsins39 sem kemur fram á sjónarsviðið nokkrum árum
síðar.40 Í þeirri hugmynd hugar Foucault meira að sjálfsverunni41 en í fyrri verk-
um sínum. Gagnrýni er fyrir honum í raun ákveðin sjálfsmótun, sjálfsskoðun sem
á sama tíma felur í sér að létta af sér oki, afbyggja, afmá eða gagnrýna þá kenndu
hugsun sem við verðum vör við í hugum okkar. Hugsanagangur okkar mótast af
kerfum eða lögmálum en líti manneskjur í eigin barm og skoði hvernig hugsanir
þeirra skilyrðast af kerfinu þá er fram komið gagnrýnið samband við hugsana-
kerfin.42
Þessi iðja er í raun há-kantísk því hún felst í því að spyrjast fyrir um það sem
sjálfgefið þykir og skoða mörk þess sem við getum vitað.43 Þegar há-kantísk iðja
er stunduð í anda Foucaults þá felst hún í því að skoða þau þekkingarkerfi sem
skapa okkur tilvistarrétt í samfélaginu.44 Hvernig okkur er kennt, bæði beint og
óbeint, hvernig við lærum að vera á ákveðinn hátt til þess að öðlast félagslega
staðfestingu frá þeim sem við viljum deila lífi með. Að vera gagnrýnin felur þá í
Portúgölum sem komumst í kynni við skurðgoðadýrkun í trúarbrögðum ættbálka í Afríku. Blæti
lýsir því þegar ákveðinn hlutur er talinn búa yfir krafti á borð við guðlegan anda. Í núverandi
mynd er orðið líklega frægast í túlkun Marx á skiptum söluvara í kapítalisma þó að almennur
skilningur á orðinu sé meira í líkingu við lýsingu Sigmunds Freud á kynferðislegu blæti.
38 Vert er að benda á að túlkun Björns Þorsteinssonar á grein Páls er nokkuð í þessum anda þar sem
hann leggur áherslu á hreyfinguna í grein Páls, að gagnrýnin hugsun felist í því að maður þarf
ávallt að endurmeta forsendur sínar fyrir ákveðinni skoðun. Björn Þorsteinsson, 2005.
39 Hugmynd Foucaults um gætni sjálfsins má helst finna í fyrirlestrum hans frá árunum 1981–1983 í
Collège de France um Túlkunarfræði sjálfsverunnar. Þar skoðar Foucault hugmynd Forn-Grikkja
um gætni sjálfsins sem felst fyrst og fremst í að skoða gaumgæfilega sínar eigin hugsanir og
skoðanir, reyna að þekkja sjálfa sig og þannig huga að sínu lífi og annarra með næmni eða gætni.
Foucault taldi að nútíma vestrænan hugmyndaheim skorti þessa hugsun en svo virðist sem hann
hafi á síðustu árum sínum einbeitt sér að því að skoða annan hugsunarheim, það er Forn-Grikkja,
til þess að sýna fram á að til væru fleiri leiðir eða möguleikar til að vera heldur en þeir sem nú-
tímahugmyndakerfi byðu upp á.
40 Butler, 2002:214.
41 Orðtak gagnrýninna fræða og meginlandsheimspeki er að tala um sjálfsveruhátt (e. subjectivity) í
sambandi við mótun sjálfsverunnar (e. subject). Í ensku, frönsku og þýsku virkar ekki framandi að
tala um subjekt en orðið sjálfsvera er enn sem komið er frekar bundið fræðilegri umræðu, en þýð-
ingin birtist fyrst í Auðfræðum Arnljóts Ólafsson árið 1880 samkvæmt Ritmálasafni Orðabókar
Háskólans. Íslenska orðið nær ekki blæbrigðum hins alþjóðlega, eða öllu heldur evrópska, orðs að
öllu leyti, stundum er réttara að þýða subjekt sem samfélagsþegn eða sem frumlag í setningafræði.
Sjálfsveruþýðingin leggur áherslu á það hvernig einstaklingurinn mótast í gegnum þekkingu,
hvernig veran ákvarðast af því þekkingarlandslagi sem við búum í.
42 Sem dæmi um grein sem skoðar áhrif hugsanakerfa í samtímanum má nefna „Af nýju lífvaldi.
Líftækni, nýfrjálshyggja og lífsiðfræði“ eftir Hjörleif Finnsson. Sjá Hjörleifur, 2003.
43 Foucault, 2007: 49. Samband hugsunar Foucaults við hugmyndir Kants er afar áhugavert en
Kant lagði mikla áherslu á sjálfræði á meðan Foucault er almennt talinn einn helsti gagnrýnandi
hugmyndarinnar um sjálfræði. Engu að síður var Foucault mjög í mun að leggja fram nýjar
hugmyndir um frelsi og hafði mikið dálæti á heimspeki Kants og skrifaði til dæmis hluta af
doktorsritgerð sinni um mannfræði hans.
44 Butler, 2002: 214.
Hugur 2015-5.indd 130 5/10/2016 6:45:32 AM