Hugur - 01.01.2015, Page 137

Hugur - 01.01.2015, Page 137
 „Gagnrýnin hugsun“ í gæsalöppum 137 þarf útfærslan að velta á samhenginu og þeim dæmum sem þátttakendur sam- ræðu tengja við. Ef hugað er að sambandi miðlunar og ákallsins um nýja hugsun eftir hrun er eflaust hvað áhugaverðast að heyra af reynslu þeirra sem hafa starfað víðar en í háskólakennslu. Í því samhengi er afar áhugavert að skoða viðtal Róberts Jack við Brynhildi Sigurðardóttur og Hrein Pálsson, „Að kynnast barnaheimspeki“.68 Í þessu viðtali mætist fólk sem hefur metnað til þess að kynna til leiks marg- breytilega hugsun sem víðast í samfélaginu með nýstárlegum aðferðum, og hefur unnið að slíku til margra ára á Íslandi. Það kemur bersýnilega í ljós að miðlunin krefst einhvers alls annars en að geta notað grein á borð við þessa til þess að tala um gagnrýni eða gagnrýna hugsun. Hreinn kemur strax inn á að hver hópur hafi ólíka „dýnamík“ og að byggja þurfi upp traust.69 Það kemur skýrt fram í viðtalinu að frekara næði skorti til þess að iðka gagnrýni með nemendum. Þótt gagnrýnin hugsun sé búin að festa sér sess sem eitt af markmiðum nýrrar aðal- námskrár þá séu þar of mörg markmið og oft þurfi að miða tímann við þau þar sem auðveldara er að mæla frammistöðu.70 Í samræmi við umfjöllun þessarar greinar má setja spurningarmerki við það að beintengja gagnrýna hugsun svo mjög við markmiðssetningu; eitthvað sem hægt er að stunda á milli eitt og tvö á mánudögum, á undan íslensku og á eftir ensku og mæla framfarir nemenda á einhvers konar reglustiku gagnrýninnar hugsunar. Brynhildur og Hreinn færa umræðuefnið handan slíkrar flokkunar þegar þau benda á að heimspekikennarar eru ávallt þegar íslenskukennarar eða að íslenskukennarar séu alltaf þegar um- hverfisfræðikennarar. Í anda hinnar styðjandi iðju þá felst skoðun og áskorun á þekkingarrammann ekki alltaf í að mölva kerfið niður utan frá heldur að koma auga á hvernig við förum handan flokkunar alla daga, hvernig möguleikarnir til breytinga leynast í öllum samskiptum. Að takast á við gagnrýni og vera gagnrýnd, jafnvel þótt aðferðin sé styðjandi og uppbyggjandi, er eitthvað sem tekur á og vekur upp í okkur tilfinningar. Kannski vakna upp varnarviðbrögð en fáist næði til að melta gagnrýnina þá er góður möguleiki á að komast handan þeirra varna og sjá að nýju „gleraugun“ veita nýja sýn á viðkomandi málefni.71 Eins og Brynhildur lýsir í viðtalinu: [...] það er í samræðu sem ég kemst í uppnám, eitthvað hefur tilfinninga- lega áhrif á mig, jákvæð og neikvæð. Að mínu mati snýst góð samræða um að leyfa þessu að koma upp og vinna úr því, meðal annars. En ég 68 Róbert Jack, Hreinn Pálsson, Brynhildur Sigurðardóttir, 2010. 69 Róbert Jack, Hreinn Pálsson, Brynhildur Sigurðardóttir, 2010: 10. 70 Gagnrýni á slíkar mælingar í skólakerfinu er víða að finna innan gagnrýninna fræða en besta dæmið er eflaust grein Louis Althusser, „Hugmyndafræði og hugmyndafræðileg stjórntæki rík- isins“. Sjá Althusser, 2009. 71 Sálfræðingurinn Grada Kilomba sem starfar helst innan kenninga eftirnýlendustefnu kemur fram með hugmyndir um ákveðið sálrænt ferli varnarviðbragða við gagnrýni sem hún byggir á hugmyndum Pauls Gilroy. Þetta ferli er samkvæmt þeim ómissandi til þess að maður læri virkilega að hlusta á aðrar manneskjur. Í þessu ferli fer maður fyrst í gegnum afneitun, síðan sekt- arkennd, svo skömm uns maður viðurkennir ferlið og reynir að bæta upp fyrir það. Sjá Kilomba, 2010. Hugur 2015-5.indd 137 5/10/2016 6:45:34 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.