Hugur - 01.01.2015, Page 148

Hugur - 01.01.2015, Page 148
148 Róbert Jack fjallað um.10 Þó má nefna að í greininni „Hver er hinn sanni heimur?“ er talað um mannheim en ekki merkingarheim,11 en þessi orðalagsbreyting rúmast reyndar alveg innan þeirrar lýsingar sem Páll gefur þar. Í ljósi þessarar þrískiptingar tengist hlutlæga sjónarhornið á dauðann náttúru- heimi og hið huglæga hugarheimi (205). Í framhaldinu segir Páll svo að merk- ingarheimurinn hafi orðið útundan og það verði að laga (205–206). Hann lítur sem sagt á það sjónarhorn sem felst í merkingarheiminum sem eins konar lausn á vandanum sem fólst í að takmarka sig við hlutlæga og huglæga viðhorfið. Hér verð ég þó að lýsa örlitlum vonbrigðum með aðferð Páls. Þar sem þessi þrískipting heimsins er ekkert nýtt fyrirbæri hjá Páli finnst mér að hann hefði alveg getað sleppt þeim leik að setja tvö sjónarhorn upp fyrst eins og þau séu aðalsjónarhornin og nefna svo loks hið þriðja sem eins konar lausn. Reyndin er sú að þriðja sjónarhornið er ekki samþætting hinna tveggja heldur nýtt sjónarhorn. Páll segir reyndar að fyrstu tvö viðhorfin hafi verið ráðandi í hugleiðingum heim- spekinga um dauðann (205). Þannig vill hann ef til vill réttlæta að nefna ekki öll sjónarhornin strax. Ég er ekki sannfærður um að það sé rétt hjá honum að þriðja sjónarhornið hafi orðið útundan hjá öðrum heimspekingum, eins og ég mun rök- styðja síðar. Það var fyrst og fremst Páll sem skildi það eftir í umfjöllun sinni. Gott og vel, en hverju skiptir þetta þá? Er þá ekki bara allt komið fram á endanum og allt í góðu? Nei, mér virðist þessi aðferð gefa síðasta sjónarhorninu óþarflega mikið vægi, eins og það eitt sé rétta viðhorfið. Nánari skoðun sýnir að við getum ekki verið án neins af þessum viðhorfum og vandinn við að nota bara eitthvert eitt sjónarhornið af þessum þremur er að þá skortir hin tvö. Raunar sýnist mér Páll vera að vissu leyti á þessari skoðun en aðferðin veitir okkur aðra upplifun. Sjálfum finnst mér að Páll hefði einfaldlega átt að nefna öll sjónarhorn- in strax og fjalla svo um muninn á þeim og nauðsyn þess að virða þau öll. Til að réttlæta það að veita merkingarheiminum sérstöðu reynir Páll þó að hnika til fyrri hugmynd um þennan heim. Hér er honum í mun að merkingarheimurinn hafi visst sjálfstæði og sé ekki eintómt afsprengi huga okkar. Á sama tíma felst hann þó ekki á að merkingarheimurinn sé sjálfstæður handanheimur (206–208). Hin frumspekilega lausn Páls er þá svona: „Þessi veruleiki [merkingar] býr í innsta kjarna efnisins, í djúpum hugans og í þessu afli sem allt tengir saman og enginn fær skilið nema í brotum hugtaka, ímynda og hljóða“ (208). Sjálfum finnst mér þetta heldur óljóst, en hér er ef til vill á ferðinni einhvers konar aristótelísk lausn þar sem Páll hefur hafnað handanheimi í anda Platons. Það sem þó er erfiðast að skilja í þessu er að Páll segir að við höfum vissan aðgang að merkingunni hér og nú (209) en jafnframt að dauðinn sé „eins konar dyravörð- ur merkingarheimsins sem okkur er ekki hleypt inn í fyrr en við deyjum í raun og hindrar okkur þar með í að ráðskast með merkinguna að vild“ (210). Það sem gerir erfitt að skilja þetta er að Páll virðist ekki trúa því að líkaminn og sálin, þ.e. hinn einstaki hugur, lifi dauðann af. Ef það er rétt getum við klárlega ekki haft nein áhrif á merkingarheiminn eftir dauðann. Ef við höfum heldur ekki 10 Sjá Róbert Jack 2014: 66–69. 11 Sbr. Páll Skúlason 1995: 40. Hugur 2015-5.indd 148 5/10/2016 6:45:38 AM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.