Hugur - 01.01.2016, Side 14

Hugur - 01.01.2016, Side 14
14 Björn Rúnar Egilsson ræðir við Christopher Mole verkefnin gera ekki miklar kröfur til okkar. Ég gæti horft út um gluggann og svo fremi sem ekkert annað á sér stað þá krefst verkefnið ekki mikillar hugrænnar getu og því er fyrir hendi sá möguleiki að veita einhverju öðru athygli á sama tíma. En um leið og eitthvað gerist fyrir utan gluggann þá hverfur möguleikinn á skiptri athygli. Er það ekki þannig að það verður erfiðara þegar frálag tveggja verkefna er það sama (t.d. að íhuga það sem er að gerast í tveimur verkefnum samtímis)? Er frálagið lykill- inn að því að skera þarna á milli? Það sem gerir okkur erfitt fyrir er að bakgrunnsmengin sem virkjast við fram- kvæmd verkefnanna vilja gjarnan skerast og þegar það gerist, er ekki hægt að skipta athyglinni. Mér sýnist það vera ein af grunnstaðreyndum mannlegr- ar sálfræði að við höfum takmarkað vinnsluminni. Vinnsluminnið er hugræn geta sem við notum í ótal margt og lendir þannig nánast alltaf á skurðpunkti bakgrunnsmengja mismunandi verkefna. Það veldur þessum kastljósseiginleika – þörfinni fyrir að einbeita sér að einhverju afmörkuðu – vegna þess að við þurfum að velja í hvað við ætlum að nýta vinnsluminnið. Athygli sem slík tengist fleiri fræðigreinum en heimspeki. Við þurfum aðeins að leiða hugann að fólki sem glímir við sjúkdóma á borð við ADHD og ADD og vinnunni við að þróa meðferðarúrræði og lyf við þeim. Í bókinni segirðu að möguleikinn á at- viks-frumspekilegri (e. adverbial metaphysics) nálgun á athygli geti haft þýðingu fyrir framgang vísindanna. Kemurðu auga á einhverjar praktískar afleiðingar sem kenningin þín hefur fyrir starfandi sálfræðinga eða læknisfræðilegar rannsóknir? Ja, ég veit það nú ekki, ég er nú einu sinni bara heimspekingur. (Hlær.) Af- leiðingarnar gætu verið neikvæðar. Án þess að þekkja kenninguna gætir þú haldið, eins og margir sálfræðingar halda í dag, að það sé eitthvert ferli í heil- anum þar sem hægt er að staðsetja athygli. Ef þú ert þeirrar skoðunar gætirðu einnig haldið að það sé vel þess virði að reyna að þróa tækni sem tekur myndir af taugaboðum í þeim tilgangi að sjúkdómsgreina ADHD. Þú gætir einnig fengið þá flugu í höfuðið að það sé góð hugmynd að meðhöndla ADHD með því að setja rafskaut á þau svæði heilans, eða eitthvað slíkt. Ég held að slík nálgun sé röng af tveimur ástæðum. Í fyrsta lagi vegna þess að ég held að það sé ekki hægt að staðsetja athygli í heilanum á þennan hátt og í öðru lagi vegna þess að ég er ekki viss um að ADHD sé fyrst og fremst brestur á athygli. Það er reyndar ekki svo umdeild skoðun nú til dags. Krakkar með ADHD eru fullkomlega fær um að halda athygli, kannski ekki í langan tíma og ekki alltaf á því sem við viljum að þau veiti athygli, en ef við leyfum þeim að spila tölvuleiki standa þau sig ágætlega. Þau eru hins vegar ekki góð í að halda athyglinni í skólastofunni og að veita truflandi áreiti viðnám. Það er hægt að draga þetta enn betur fram með því að gera tilraun- ir þar sem krakkar með ADHD takast á við sjónræn athyglispróf þar sem þau standa sig ekkert verr en venjuleg börn. Ég held að ADHD snúist í rauninni ekki um það að vera ófær um að veita athygli, þannig að það væri alltaf stór gjá á milli Hugur 2017-6.indd 14 8/8/2017 5:53:13 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.