Hugur - 01.01.2016, Page 21

Hugur - 01.01.2016, Page 21
 Skylduboðið um að veita athygli 21 snúin fyrir okkur; eða við gætum þurft að sætta okkur við það að hafa bara hluta sönnunargagnanna. Í þessu samhengi geta skoðanir okkar verið rangar að ósekju. Við gerumst strax saknæmari vegna brestanna í athygli okkar. Svo kann að vera að ekki sé við okkur að sakast ef okkur tekst ekki að gefa einum hlut nægilegan gaum, ef eitthvað annað á réttmætara tilkall til hugrænnar getu okkar, en í slíku tilfelli hefðum við átt að beina athygli okkar að hinum hlutnum, þegar horft er á heildarmyndina. Þar sem hægt er að leiða í ljós að engin sök sé til staðar þegar um sannleiksbrest (e. failure of truth) er að ræða vegna tilvistar mildandi þáttar; er athyglisbrestur (e. failure of attention) aðeins ámælislaus þegar sýnt er fram á að ekki sé um brest að ræða í þessu samhengi þegar allt kemur til alls. Brestur á athygli sem skoðaður hefur verið frá öllum hliðum er þolnari gagnvart mildun. Í bréfi sem Leibniz skrifaði snemma á ferlinum, íhugar hann ögrandi dæmi: Pílatus er fordæmdur. Hvers vegna? Vegna þess að hann skortir trú. Hvers vegna skortir hann hana? Vegna þess að hann skortir viljann til athygli. Hvers vegna er því svo farið? Vegna þess að hann hefur ekki skil- ið nauðsyn málsins ... Hvers vegna hefur hann ekki skilið hana? Vegna þess að tilefni til þess að skilja var ekki fyrir hendi.5 Meðferð Leibniz á þessu dæmi gefur til kynna að skylduboðið um að veita athygli gerir óvenjulega mikla grundvallarkröfu til okkar. Trúarlegt inntak dæmis hans er hvorki óhjákvæmilegur hluti þess, né nauðsynlegt fyrir það sem við höfum nú í hyggju. Til eru fjölmargar hversdagslegar sakir sem einnig eiga uppruna sinn í athyglisbrestum. Þessa bresti er aðeins hægt að útskýra með samsvarandi skiln- ingsbrestum. Slíka skilningsbresti hefði verið hægt að forðast ef athyglin hefði verið í lagi. Ef við erum, eins og Leibniz, að rekja okkur eftir orsakakeðju í leit að stað þar sem ábyrgðinni verður ekki lengur varpað á næsta mann og engra frekari útskýringa á saknæmi verður þörf, munum við í mörgum tilfellum komast í aðstöðu sem athygli fer með ómissandi hlutverk: reiði maðurinn, letinginn og dóninn eru allir, hver á sinn hátt, hirðulausir, kærulausir, tillitslausir, hvatvísir, ónærgætnir eða fljótfærir, eins og sést á því hversu oft skaðinn sem þeir valda er óviljandi. Sá óþolinmóði er fyrstur til að líta undan. Sérhver þessara lasta byggir að hluta til á vangá þess sem undir hann er settur: hann er ekki stilltur inn á að skynja staðreyndir heimsins sem hann aðhefst í. Jafnoft fer athygli í einhvers konar mynd með þýðingarmikið hlutverk í útskýr- ingum okkar á því að vera dygðum gædd: að elska felur óhjákvæmilega í sér að einblína á ágæti annarra; góðvild hefst með vitund um þarfir þeirra; meðaumkun hlustar gaumgæfilega á hvernig ófarir annarra eru til komnar; hugrekki er eig- inleiki sem athygli þarf að hafa til að grípa til óhindraðra aðgerða.6 „Frelsi […] felst ekki í kröftugum og óvelkomnum afskiptum sem hafa enga þýðingu, heldur í agaðri yfirbugun sjálfsins. Auðmýkt er ekki sérkennilegur ávani sjálfseyðingar, 5 Tilvitnun í Hill 2001: 174 6 Ég ræði þetta atriði í lengra máli í Mole 2007. Hugur 2017-6.indd 21 8/8/2017 5:53:14 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.