Hugur - 01.01.2016, Síða 68

Hugur - 01.01.2016, Síða 68
68 Tryggvi Örn Úlfsson Ef við setjum lífið á stall sem grundvallarlögmál eða sannleika sem heimspeki- kerfin svíkja, verður það að einhliða hugtaki sem öðlast ekki merkingu nema í krafti þeirra hugtaka sem það afmarkar sig frá. Hegel fékk þannig þá hugmynd að reyna að höndla eininguna í gegnum óeininguna. Í Guðfræðilegum æskuskrifum sínum kemst hann svona að orði: „Ef ég segi að lífið sé tenging andstöðunnar og einingarinnar, þá er hægt að einangra þessa tengingu og mótmæla með því að stilla henni upp sem andstæðu hins ótengda; ég þyrfti þá að segja að lífið væri tenging hins tengda og hins ótengda [...].“4 Þannig er Hegel kominn með grundvallarhugmyndina í heimspekikerfinu. Þar sem hugurinn getur hvorki vísað til ytri einingar né innri einingar í leit sinni að grundvelli að lífsspeki sinni, verður hann að byrja á óeiningunni, þ.e. einhliða hugtaki, og leiða af því andstæðu sem þannig gefur upprunalega hugtakinu merkingu. Þegar við leiðum svo aðra and- stæðu af andstæðunni og höldum svo áfram með því að rekja okkur frá hugtaki til hugtaks, áttum við okkur að lokum á þeirri heild sem hugtökin mynda í samspili sínu. Heimspekikerfið, sem Hegel fellst á að sé nauðsynlegt, er þá lífrænt safn þeirra hugtaka sem þannig verða til í andstöðu hvert við annað og með tilvísun hvert til annars. Hegel er þannig þekktur fyrir að hafa haldið því fram að „[h]ið sanna [sé] heildin“5. Hegel áttaði sig að sama skapi á því að hann gat ekki stillt upp hvoru á móti öðru, því sem er og því sem ætti að vera, vegna þess að hið síðarnefnda er ein- göngu hugsjón sem hefur aðeins merkingu að því marki sem hægt er að fram- kvæma hana í andstæðu sinni, þ.e. veruleikanum. Þannig kemst Hegel að annarri meginniðurstöðu, að „allt sem er raunverulegt er skynsamlegt og allt sem er skyn- samlegt er raunverulegt“6. Hér komum við að ágreiningi Hegels við Kant og þar með afmörkun og merk- ingu heimspekikerfa þeirra. Það má segja að Hegel hafi ekki fundist Kant ganga nógu langt í að sætta hina ólíku þætti reynslu síns tíma. Þrátt fyrir að honum hafi tekist að sætta kristna heimsmynd þeirri newtonsku, tókst honum ekki – eða vildi ekki – sætta hugarheim og raunveruleika, þekkingu og siðferði. Það sem Kant setur fram í Gagnrýni hreinnar skynsemi er einungis skilyrði mögulegrar þekkingar, ekki raunverulegrar. Hegel taldi aftur á móti að það yrði að lýsa tilurð þekkingarinnar í sambandi og togstreitu hugarheimsins við það sem hugurinn telur vera raunverulegt og lýsa síðan ferð sjálfsverunnar frá fáfræði til þekkingar þar sem hinir andstæðu pólar sjálfsveru og raunveruleika sættast smám saman, eins og Hegel lýsti í Fyrirbærafræði andans. Ef sannleikurinn á að vera annað en tómt og einhliða hugtak, þarf hann að geta sameinast því sem hann er í andstöðu við. Þannig verður algildið sem einkennir sannleikann ekki aðeins tóm hugmynd, gildi sem við vísum til án þess að vita raunverulega hvað þýðir, heldur raunveru- legt algildi sem inniheldur hið afstæða – kerfi hins afstæða. Þessi hugleiðing leiðir okkur að enn annarri meginhugmynd Hegels: við eigum ekki að skilja hinn al- gilda sannleika einungis sem undirstöðu, þ.e. sem raunveruleikann sem liggur til 4 Hegel 1907: 348. Vitnað eftir Bernard Bourgeois. 1979: 16. 5 Hegel 1807/1986: 24. 6 Hegel 1821/1989: 24. Hugur 2017-6.indd 68 8/8/2017 5:53:28 PM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.