Hugur - 01.01.2016, Side 109

Hugur - 01.01.2016, Side 109
 Raunveruleikinn er ævintýri 109 Allt er hlutur Innan hlutmiðaðrar verufræði er, einsog nafnið gefur til kynna, lögð áhersla á hlutinn og veru hans. Raunar skilgreina hlutmiðaðir verufræðingar allt sem hlut, jafnvel hugurinn er hlutur. Samkvæmt hlutmiðaðri verufræði er ekkert tóm. Allt er hlutur. Hlutir hafa aftur á móti ekki allir sömu eiginleika. Það má vissulega gera grein fyrir eiginleikum margra hluta með empírískri gagnasöfnun, en hugur- inn er ekki með þeim hætti, heldur er hugurinn eða sjálfið yfirskilvitleg staðreynd (e. transcendental fact).7 Yfirskilvitleg staðreynd að því leyti að vísindin geta ekki fyllilega gert grein fyrir þessum þætti verunnar, þessum anda sem býr í efninu. Það má segja að hlutmiðaðir verufræðingar notist við það gamalkunna heim- spekilega vopn að snúa hlutunum við og skoða hlutinn frá sjónarhorni hlutarins. Þannig er gerð tilraun til þess að snúa upp á skilgreiningar og til dæmis skoða hvernig heimurinn virki ef við sleppum því að aðgreina hlutveruleika og sjálfs- veruleika. Hlutmiðuð verufræði leggur alla tilvist að jöfnu, á þann hátt að ef eitt- hvað er til á annað borð, þá er það til. Hlutmiðaðir verufræðingar hafna því auk þess að „vera“ eða að verufræðileg staða hluta sé einungis nálganleg sem samband við mennska vitund. Þeir sem aðhyllast hlutmiðaða verufræði telja að við upphaf nútíma, þegar sjálfsveran og hlutveran voru aðskilin með afgerandi hætti, hafi það haft þau áhrif að svið heimspekinnar hafi þrengst. Þar vegur þungt sú tvíhyggja milli sálar og líkama sem birtist í heimspeki Renés Descartes og sú staðhæfing Immanúels Kant í kjölfarið, að til séu annars vegar heimur fyrirbæranna (e. phenomena) og hins vegar heimur hlutarins í sjálfum sér (e. noumena). Við manneskjurnar erum gæddar skilningarvitum sem eru fær um að skynja fyrirbærin, en um hlutinn í sjálfum sér getum við ekkert vitað. Til þess höfum við ekki forsendur, sagði Kant. Þessi aðgreining milli sjálfsveru og hlutveru hefur samkvæmt hlutmiðuðum veru- fræðingum orðið til þess að heimspekingar forðast að fjalla um það sem liggur utan mennsks hugar. Þetta kalla hlutmiðaðir verufræðingar samhengishyggju (e. correlationism) og telja að hún liti meira og minna alla vestræna heimspeki sam- tímans. Enn fremur hafi þessi aðgreining orðið til þess að setja skynjun skör neðar en rökhugsun, sem hefur stuðlað að stigveldi milli lista og vísinda og enn fremur raunvísinda og hugvísinda.8 Hlutmiðuð verufræði í meðförum Timothys Morton er viðleitni til að taka inn heild alls sem er og sýna fram á að það sem stýrir heiminum og knýr lífið áfram er ekki vélrænt orsakasamhengi, heldur núningur í vídd skynjunarinnar. En vissulega byggja þeir sem aðhyllast hlutmiðaða verufræði á hugmyndum og skrifum margra forvera sinna allt frá upphafi heimspekinnar. Kenningin er póst- módernísk að því leyti að hún velur sér það sem hún vill úr heimspeki-stórmark- aðinum. Allt frá Aristótelesi, gegnum skólaspekingana, búddísk fræði, íslömsk fræði, nýaldarheimspeki, fyrirbærafræði, rökgreiningarheimspeki, strúktúral- 7 Morton 2013: 63. 8 Sama rit: 78. Hugur 2017-6.indd 109 8/8/2017 5:53:41 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.