Hugur - 01.01.2016, Page 112
112 Sigrún Inga Hrólfsdóttir
og þannig á ævintýrið sér stað, hið óendanlega flókna samspil sem veruleikinn og
orsakasamband hlutanna er.14
Vera
Frakkinn René Descartes, sem stundum er nefndur faðir nútímaheimspeki, gerði
skýran greinarmun á sál og líkama – sjálfsveru og hlutveru. Í viðleitni sinni til
þess að endurhugsa ýmsar hugmyndir skólaspekinga15 samtíma síns, sem að hans
mati voru úr sér gengnar, vefengdi hann kerfisbundið viðurkenndar hugmyndir.
Hann var rökhyggjumaður og dró í efa að reynsla (skynjun) væri heppileg aðferð
til að byggja traustan grundvöll fyrir vísindi.16 Eitt gat hann þó ekki dregið í efa,
og það var að hugur hans gat hugsað. Af því sprettur hin fræga setning „Cogito
ergo sum“ eða „Ég hugsa, þess vegna er ég“. Tvíhyggja hans um sál og líkama hafði
mikil áhrif og Descartes hafnaði hinni aristótelísku skýringu skólaspekinnar að
allir efnislegir hlutir væru bæði efni og form. Sálin var raunveruleg fyrir Descartes
og Guð sömuleiðis, en með rökhyggju taldi hann sig færa sönnur á tilvist Guðs.17
Descartes taldi sig skoða heiminn og sjálfan sig á hlutlægan hátt. Og hin
kartesíska skoðun var studd og staðfest gegnum stærðfræði og eðlisfræði. Þessi
hlutlæga nálgun var þó á forsendum rökhugsunar en ekki skynjunar. Með þess-
um hætti klippti hinn kartesíska heimsmynd út hina skynfræðilegu vídd. Hið
skynfræðilega féll undir „persónulegt“ mat. Skynfræði og vísindi voru aðskilin og
jafnframt svið listar og rannsókna. Við þessa aðgreiningu losnaði einnig um þau
tök sem guðstrú hafði á þekkingu og list.18
David Hume hugsaði mikið um orsakasamband hlutanna og var sammála Isaac
Newton að því leyti að við höfum margs konar möguleika til þess að útskýra
hvernig hlutirnir virka, en það er ekki þar með sagt að það skýri af hverju þeir
virki. Hume hélt því þess vegna fram að hugmyndir okkar byggðust á reynslu og
vana. Til dæmis sú skoðun okkar að sólin komi upp á hverjum morgni. Hume var
þeirrar skoðunar að við séum þess fullviss að sólin muni koma aftur upp á morgun
vegna þess að þannig hefur það alltaf verið, en ekki vegna þess að við höfum svo
djúpan skilning á orsökum og virkni himintunglanna. Orsakasamband er því vit-
und um fylgni. En ein orsök getur þó haft óteljandi mismunandi afleiðingar í för
með sér. Heimurinn er kannski fullkomlega óreiðukenndur, en náttúran kennir
okkur. Frá ungum aldri lærum við af reynslunni í samskiptum okkar við ytri og
innri heim. Það er fyrirfram ákveðið samræmi milli ytri og innri náttúru. „Þannig
14 Morton 2013: 26.
15 Skólaspeki er sú heimspekihefð sem var ríkjandi í Evrópu á miðöldum eða frá árunum 1000–
1500. Skólaspekingar byggðu á kristinni guðfræði og ritum Aristótelesar sem Bóetíus hafði þýtt
á latínu um 500 árum fyrr. Markmið skólaspekinnar var að sætta kristna speki við rökfræði forn-
aldar. Það er almennt litið niður á skólaspekina enn þann dag í dag. Skólaspekingar lögðu stund
á frumspeki sem módernistar höfnuðu. Timothy Morton telur að við þurfum nú að skilja við
módernismann, hann hafi komið okkur og öllu umhverfinu á hvínandi kúpuna. En þá fáum við í
vissum skilningi hugmyndir Aristótelesar aftur.
16 Þorsteinn Gylfason 2001.
17 Descartes 2001.
18 Morton 2013: 79.
Hugur 2017-6.indd 112 8/8/2017 5:53:42 PM