Hugur - 01.01.2016, Page 113

Hugur - 01.01.2016, Page 113
 Raunveruleikinn er ævintýri 113 er þetta bara,“ segir Hume. Orsakasamhengi er hugboð um orsakir og tengsl. Þetta viðhorf endurspeglast að einhverju leyti innan kennilegs raunsæis19 í hug- myndum franska heimspekingsins Quentins Meillassoux. Hann álítur að það sé í raun ekkert sem segir að náttúrulögmálin, lögmál eðlisfræðinnar, geti ekki breyst. Þau eru ekki bundin nauðsyn.20 Hume lagði einnig áherslu á þá hugmynd að það að vera maður er miklu rík- ari og flóknari hugmynd en svo að þekkingin og vísindin geti gert grein fyrir henni. Enda var það síðar dregið í efa að tungumálið gæti með gagnsæjum hætti gert grein fyrir heiminum. Á dögum Humes og Isaacs Newton töldu menn að tungumálið væri miðill sem gæti teiknað upp sannferðuga og tæmandi lýsingu á raunveruleikanum og að athugandinn gæti með hlutlausum hætti beint augum sínum að fyrirbærunum og heiminum. Skynjun er flókið og einstaklingsbundið fyrirbæri og Hume reyndi að skil- greina hvað ætti sér stað innra með okkur þegar við skynjum. Hann greindi á milli frumskynjana (e. impressions) og hugmynda (e. ideas). Frumskynjanir greinast enn fremur í innri og ytri skynjanir. Upptök hugmynda eru í frumskynjunum. Hug- myndir eru eftirmyndir þeirra og ímyndunaraflið gerir okkur svo kleift að setja saman hugmyndir, sem aftur framkallar margvísleg tengsl og nýjar hugmyndir.21 Kópernikusarbylting Immanúels Kant Kópernikusarbyltingu Kants má lýsa með þeim hætti að það eina sem við getum vitað, er hvernig heimurinn birtist í skynjuninni. „Vitsmunir okkar draga ekki lögmál sín úr náttúrunni heldur þröngva þeir lögmálum sínum upp á náttúruna“, hefur austurrísk-breski heimspekingurinn Karl Popper eftir Kant.22 Einsog við vitum setti Kópernikus fram sólmiðjukenningu á 16. öld, þar sem gengið var út frá því að jörðin snerist í kringum sólina. Þessi mikla uppgötvun færði manninn úr miðju alheimsins. Kant kallaði uppgötvun sína Kópernikusarbyltingu á þeim forsendum að maðurinn skynjar heiminn engu að síður á sínum forsendum. Hver maður er miðja í sínum alheimi. Að hans mati kemur maðurinn skipulagi á heim- inn og heimurinn ber merki huga okkar. Meillassoux heldur því fram að það sé öfugmæli að kenna kenningu Kants við Kópernikus, því hin byltingarkennda hugmynd Kópernikusar var að staðsetja sólina sem miðju sólkerfisins. Meillassoux telur hins vegar að Kant færi með sinni kenningu miðjuna aftur beint til jarðarinnar og raunar lengra en það, þ.e. inn í huga mannsins og að þar með hafi öll heimspekin verið bundin og einangruð við hið mannlega svið. 19 Kennilegt raunsæi er þýðing greinarhöfundar á hugtakinu speculative realism, sem er afsprengi hlutmiðaðrar verufræði og er einnig tilraun til þess að færa sig út fyrir mörk mennskrar vitundar. Innan kennilegs raunsæis rúmast nokkur afbrigði en megineinkenni þessarar raunsæisstefnu er að hafna einhliða áherslu á mannlega reynslu, eða því sem forkólfar stefnunnar nefna samhengis- hyggju (e. correlationism), því að maðurinn hugsi allt í samhengi við sjálfan sig. 20 Meillassoux 2008: 66. 21 Morris og Brown, „David Hume“ 22 Popper, „Immanúel Kant: Heimspekingur upplýsingarinnar“ Hugur 2017-6.indd 113 8/8/2017 5:53:42 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.