Hugur - 01.01.2016, Side 126

Hugur - 01.01.2016, Side 126
126 Eyja M. Brynjarsdóttir Það ætla ég líka að sýna fram á með tvennum hætti. Annars vegar ætla ég að taka dæmi af rökgreiningarheimspekingum frá fyrstu áratugum hefðarinnar sem not- uðu þessar aðferðir við samfélagsgagnrýni. Hins vegar mun ég fjalla um hvernig það hefur færst í vöxt á síðustu árum að rökgreiningarheimspekingar stundi sam- félagsgagnrýni með aðferðum hefðarinnar. Ég mun hins vegar lítið fara út í það hvers vegna það „datt úr tísku“ í öll þessi ár að nota rökgreiningarheimspeki til að stunda samfélagsgagnrýni. Það er í sjálfu sér fyllilega verðug spurning en því miður gefst ekki rúm til að svara henni hér. Russell og róttæknin Oft er talað um Bertrand Russell (1872–1970) sem einn af sjálfum feðrum rök- greiningarheimspekinnar. Russell átti afar langan feril í heimspeki sem segja má að hafi náð yfir mörg tímabil, allt frá því fyrir aldamótin 1900 þar til hann lést árið 1970. Russell hefur verið þekktastur fyrir að leggja stund á heimspeki stærðfræðinnar, rökfræði, málspeki, þekkingarfræði og frumspeki og hefð hefur skapast fyrir því að skoða sögu rökgreiningarheimspeki svo til eingöngu út frá því sem átti sér stað á þessum sviðum. Hann var afar afkastamikill á löngum ferli og eftir hann liggur stórt safn verka um alls konar heimspekileg efni en þau sem hafa hlotið langmesta athygli síðustu hálfa öldina eru þau sem eru á fyrrgreind- um sviðum og snúast t.d. um grundvöll stærðfræðinnar, lýsingakenningu hans (e. theory of descriptions), röklega eindahyggju (e. logical atomism), skynreyndir (e. sense data) eða muninn á viðkynningarþekkingu (e. knowledge by acquaintance) og lýsingarþekkingu (e. knowledge by description).4 Russell var jafnframt ötull baráttumaður fyrir félagslegu réttlæti og sjálfum sér samkvæmur sem slíkur. Hann sat tvisvar í fangelsi vegna friðarbaráttu; í fyrra skiptið í fyrri heimsstyrjöldinni og í það seinna 89 ára gamall í Víetnamstríð- inu. Hann missti stöðu sína við Oxford-háskóla árið 1915 vegna andstöðu við þátttöku Breta í stríðinu en var þó boðin staðan aftur eftir að stríðinu lauk. Auk þess að taka virkan þátt í samfélagsbaráttu skrifaði Russell fjölmargar bækur og greinar sem fela í sér mikla samfélagsádeilu og þar beitir hann aðferðum sem hann leggur áherslu á í heimspeki sinni og koma glöggt fram í hugmyndum hans um beitingu heimspekilegrar hugsunar. Einnig birtast þar skýrt hugmyndir Russells um stöðu mannsins í heiminum, um tilgang þess sem maðurinn tekst á við í lífinu og afstaða hans til ýmissa mála sem varða réttlæti og skiptingu auðs, svo eitthvað sé nefnt. Það er því alls ekki rétt að líta á skrif hans um siðferði og stjórnmál sem einhvers konar hliðarbúgrein við hina „raunverulegu“ heimspeki hans. Heimspekileg hugsun Russells kemur ekkert síður fram þarna en í öðrum skrifum hans. Russell er umhugað um að berjast gegn kredduhugsun og fordómum og hann skrifar til dæmis um menntun sem eitthvað sem eigi að þroska dómgreind nem- 4 Meðal þekktra verka um þessi efni má nefna Russell 1903; 1905; 1911; 1914a; 1914b; 1924 og 1949 en raunar er af nógu öðru að taka. Hugur 2017-6.indd 126 8/8/2017 5:53:46 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.