Hugur - 01.01.2016, Side 129

Hugur - 01.01.2016, Side 129
 Rökgreiningarheimspeki sem gagnrýnistól 129 Rökfræðileg raunhyggja Svokölluð rökfræðileg raunhyggja sem einnig er þekkt undir heitinu rökfræðileg- ur pósitívismi (e. logical empiricism eða logical positivism) eða einfaldlega pósití- vismi hafði mjög mótandi áhrif á þróun rökgreiningarheimspeki. Um er að ræða hreyfingu sem myndaðist í Vínarborg á þriðja áratug síðustu aldar og átti svo eftir að hafa umtalsverð áhrif í Bretlandi og Bandaríkjunum, einkum á þróun vís- indaheimspeki, rökfræði, málspeki og þekkingarfræði. Pósitívistar eru þekktastir fyrir að leggja mikla áherslu á vísindalega og röklega hugsun og að hafna allri frumspeki og á seinni tímum hefur lítið farið fyrir því að þeir væru sérstaklega orðaðir við samfélagsmál. Ef eitthvað er þá hefur tilhneigingin verið sú að líta á þá sem fulltrúa þeirra sem vilja bola allri gildishlaðinni umræðu út úr heimspekinni. Hreyfingin hefur þannig hlotið þá ímynd í hugum margra í seinni tíð að hafa jafnvel verið andpólitísk en þegar saga hennar er skoðuð, má sjá að beinlínis var lagt upp með ákveðnar hugsjónir varðandi áhrif á samfélagið og að sumir pósití- vistanna voru þess utan mjög róttækir og höfðu það markmið að nota heimspeki sína til að þoka þar að lútandi stefnumálum áfram. Eins og nefnt hefur verið varð rökfræðilegur pósitívismi til í Vín á árunum milli stríða. Á þessum tíma var talsvert um að menntamenn kæmu saman á heimilum hver annars og mynduðu klasa, svokallaða hringi, eftir áhugasviðum og hugðar- efnum.9 Sá hringur sem átti eftir að verða þekktastur var sá sem hittist á heimili heimspekiprófessorsins Moritz Schlick og hefur verið kallaður Vínarhringurinn (þ. Wiener Kreis) og er einmitt sá hópur sem verður rætt um hér. Meðal meðlima hópsins má nefna, auk Schlicks, Rudolf Carnap, hjónin Otto Neurath og Olgu Hahn-Neurath, bróður Olgu, Hans Hahn, Herbert Feigl, Karl Menger og Kurt Gödel. Á sama tíma varð til nátengdur hringur í Berlín og í honum voru meðal annarra Hans Reichenbach, Carl Hempel, Richard von Mises og David Hilbert. Árið 1929 sendu félagar Vínarhringsins frá sér stefnuskrá sem lýsir því sem líta má á sem helstu kennisetningar hringsins. Stefnuskráin var samin af Otto Neur- ath og yfirfarin og lagfærð af Rudolf Carnap og Hans Hahn og allir þrír skrifuðu undir og tileinkuðu hana Moritz Schlick. Hún bar heitið „Wissenschaftliche Weltauffassung: Der Wiener Kreis“, eða „Hin vísindalega heimsmynd: Vín- arhringurinn“. Í stefnuskránni má greina fjóra meginþætti: 1) Að vísindi og vís- indaleg þekking hafi sérstakt gildi, 2) að mikilvægt sé að setja hlutina fram á skýru máli og með skýrum rökum, 3) áherslu á sannreynslu og röksannindi til að styðja sanna þekkingu, 4) andstöðu við frumspeki.10 Á þessum tíma var hið pólitíska andrúmsloft í Vín þannig að fylkingar höfðu skipast í lífsskoðunum ýmist með eða á móti vísindalegri heimsmynd og það eitt að lýsa yfir stuðningi við vísinda- lega heimsmynd fól það í sér að taka sér ákveðna stöðu í hinu pólitíska litrófi. Frá 1918 til 1934 réðu sósíaldemókratar ríkjum í Vínarborg og borgin var uppnefnd hin rauða Vín (þ. Rotes Wien). Meðal þeirra gilda sem haldið var á lofti á þeirra vegum voru framgangur náttúruvísinda og alþýðufræðsla (þ. Volksbildung), en þar 9 Dekker 2014. 10 Romizi 2012: 213–216. Hugur 2017-6.indd 129 8/8/2017 5:53:47 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.