Hugur - 01.01.2016, Side 135

Hugur - 01.01.2016, Side 135
 Rökgreiningarheimspeki sem gagnrýnistól 135 gerði misheppnaðar tilraunir til samstarfs við Max Horkheimer, einn af helstu upphafsmönnum hins svokallaða Frankfurtarskóla, þar sem gagnrýnin fræði eiga upptök sín. Árið 1937 markaði ákveðin tímamót í þessum efnum. Þá birtist hin áhrifamikla grein Horkheimers „Nýjasta árásin á frumspeki“ (Der neueste Angriff auf die Metaphysik) í sjötta hefti tímaritsins Zeitschrift für Socialforschung þar sem hann gagnrýndi harðlega hugmyndir pósitívista. Þessi grein Horkheimers átti eftir að hafa mikil og mótandi áhrif á viðtökur við verkum pósitívistanna í ranni vinstri manna og átti stóran þátt í því orðspori sem þeir hlutu, að þeir væru uppfullir af tæknihyggju og verkfærahyggju og ófærir um gagnrýnið sjónarhorn á samfélagið. Í sama tímaritshefti birtist raunar grein eftir Neurath sem var gagnrýni á pen- ingahyggju kapítalismans, enda höfðu Neurath og Horkheimer átt í nokkrum samskiptum frá því á árinu á undan.30 Hinn árásargjarni stíll í grein Horkheimers virtist koma nokkuð flatt upp á Neurath, sem skrifaði Horkheimer eftir að greinin birtist: „Nú hef ég lesið grein- ina þína. Fyrst brá mér illa við. Svo las ég hana aftur og sá að þú veitir öll þín stuðandi högg böðuð ástríkri hvatningu.“31 Neurath skrifaði svargrein sem hann vildi fá birta í tímaritinu og sendi Horkheimer (sem ritstjóra) hana nokkrum mánuðum eftir að grein Horkheimers hafði birst. Horkheimer hafnaði birtingu hennar á þeim forsendum að tímaritið væri „ekki ætlað sem vettvangur fyrir önd- verðar skoðanir“.32 Eftir þetta slitnaði upp úr öllum samskiptum þeirra á milli og Neurath óskaði fljótlega eftir að fá handritið að grein sinni endursent. Þetta handrit glataðist og Neurath lést nokkrum árum síðar en handrit að greininni fannst loks í skjalasafni í Haarlem í Hollandi árið 1996 og var fyrst farið að búa það til birtingar 2004.33 Greinin reyndist innihalda ýmis svör við ásökunum Horkheimers og leggur Neurath þar áherslu á að leiðrétta þann skilning sem Horkheimer leggur í mynd pósitívista af vísindum og tilgangi þeirra. Þessi grein Neuraths er þó alls ekki eina vísbendingin um að Horkheimer hafi dregið upp villandi mynd af pósitívisma, enda eru vissulega til ýmis önnur skrif, bæði eftir Neurath og aðra pósitívista, sem byggja hefur mátt á til að draga þá ályktun að fullyrðingar Horkheimers séu ósanngjarnar og byggðar á rangtúlkunum. Þetta hafa ýmsir fræðimenn tekið að benda á síðastliðna áratugi, ekki síst í Þýskalandi og Austurríki, en lengstum hefur sagan verið skoðuð með gleraugum Frankfurt- arskólamanna og þar með hefur verið gengið að því sem vísu að pósitívistarnir hafi verið andsnúnir öllum siðferðisdómum í heimspeki og viljalaus verkfæri illra pólitískra afla.34 Neurath leit svo á að finna mætti sameiginlegan grundvöll fyrir öll vísindi og 30 O’Neill og Uebel 2004: 75–76. 31 Bréf Neuraths til Horkheimers 21. júní 1937. Horkheimer 1995: 178. 32 Bréf Horkheimers til Neuraths 29. desember 1939. Horkheimer 1995: 344. 33 Barck 2011: 32–33. 34 Rainer Hegselmann (1983) talar t.d. um að skýringar vanti á því hvers vegna Horkheimer hafi þegar á valdatíma nasista farið að stytta sér leið í gagnrýni á pósitívista með ófyrirgefanlegum hætti. O’Neill og Uebel (2004: 89) segja að frásögn Horkheimers af pósitívisma sé best lýst sem skopstælingu á því sem Neurath og aðrir Vínarhringsmenn voru raunverulega að gera. Meira um þessa deilu má lesa í grein O’Neills og Uebels, í Barck 2011 og í Pombo, Symons og Torres 2011. Hugur 2017-6.indd 135 8/8/2017 5:53:49 PM
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.