Hugur - 01.01.2016, Side 136
136 Eyja M. Brynjarsdóttir
að þannig ættu vísindamenn úr öllum greinum að geta talað saman og gert sig
skiljanlega á sömu forsendum. Þetta var eitt af því sem Horkheimer var fullkom-
lega andsnúinn, fyrir honum gat enginn gagnkvæmur skilningur ríkt milli vís-
indagreina og þetta var ein ástæða þess að þegar þeir töluðu um vísindi gerðu þeir
það óhjákvæmilega frá mismunandi útgangspunktum. En svo við höldum okkur
við hugsun Neuraths þá voru vísindin hliðstæð samfélaginu; framfarir í vísindum
hlutu að haldast í hendur við bætt samfélag og aukin vísindaleg þekking fól meðal
annars í sér minnkandi kreddur og fordóma og aukna hamingju. Þetta þýddi ekki
að hann væri haldinn blindri trú á allt sem ætti sér stað undir merkjum vísinda,
heldur leit hann á öll vísindaleg verkefni sem verk í vinnslu og eitthvað sem við
þyrftum að nálgast út frá bestu tiltæku aðferðum og upplýsingum hverju sinni,
þ.e.a.s. eitthvað sem þyrfti að taka með fyrirvara, rétt eins og öllum hugmyndum
um samfélag og stjórnmál.35 Neurath virðist hafa litið svo á að þótt vísindin væru
sjálfstæð að því leyti að ekki væri innbyggt í þau gildismat þá væri nauðsynlegt
að hafa í vísindastarfinu markmið eða leiðarljós. Fyrir honum var þetta leiðarljós
aukinn jöfnuður í samfélaginu í marxískum anda.36
Stebbing og góð hugsun
Þriðja dæmið sem nefnt verður hér um samfélagsgagnrýni í rökgreiningarheim-
speki á fyrstu áratugum hennar eru skrif Susan Stebbing (1885–1943). Stebbing
hafði mikil áhrif á þróun rökgreiningarheimspeki í Bretlandi og var fyrsta konan
til að gegna stöðu prófessors í heimspeki við breskan háskóla. Hún hafði alla tíð
mikil tengsl við Cambridge-háskóla og telst til þeirrar hreyfingar sem kennd er
við Cambridge-greiningu (e. Cambridge analysis) en stundaði þó hvorki nám né
kenndi við skólann, enda var þetta á þeim tíma þegar konur höfðu ekki aðgang
að honum. Stebbing kenndi aftur á móti við Bedford College í London og fékk
prófessorsstöðu þar. Hún var einn af stofnendum tímaritsins Analysis, sem var
löngum eitt af flaggskipum rökgreiningarheimspeki, og átti stóran þátt í að greiða
götu rökfræðilegrar raunhyggju í Bretlandi.37
Þrátt fyrir áhuga hennar á hugmyndum pósitívista í Vín og Berlín og vináttu
við suma þeirra, voru hugmyndir Stebbing að ýmsu leyti frábrugðnar hugmynd-
um þeirra. Þar liggur beint við að nefna hugmyndir um að rökgreining gæti verið
tvenns konar; annars vegar gæti hún falist í að þýða eða greina hugtök yfir í önnur
á sama stigi, sem var greining af því tagi sem meðal annars var stunduð af Vín-
arhringsmönnum, og hins vegar gæti hún falist í að smætta hugtökin niður í önn-
ur á öðru stigi, sem fól þá í sér ákveðinn frumspekilegan kjarna. Þessi síðarnefnda
gerð var sú sem kölluð var Cambridge-greining og hún varð öllu umdeildari á
þessum tímum. Stebbing var jafnframt alla tíð hlynnt ákveðnum frumspekilegum
35 Pombo, Symons og Torres 2011: 3–4.
36 Sjá nánar Okruhlik 2004.
37 Chapman 2013.
Hugur 2017-6.indd 136 8/8/2017 5:53:49 PM