Hugur - 01.01.2016, Page 172

Hugur - 01.01.2016, Page 172
172 Jóhannes Dagsson svo á að það sé útkoma skapandi aðgerðar eða hugsunar sem slík, sem segi til um þennan greinarmun. Þótt við tölum stundum um t.d. listaverk sem frumleg, eða um að þau feli í sér framsetningu á nýrri hugmynd, virðist þar vera um dóm um gæði verksins að ræða, frekar en skýrt skilgreinda eiginleika sem vísað er til. Eins virðist vera erfitt að koma í veg fyrir að við getum haft rangt fyrir okkur þegar kemur að því að dæma um sköpun út frá hlutnum eða athöfninni sem er afurð hennar. Greinarmunurinn á S-sköpun, og P-sköpun sem settur var fram hér að ofan er einmitt ágætt dæmi um það. Það er því betri kostur hér að horfa til hugsunarinnar eða athafnarinnar sjálfrar, að horfa til þess að þessi fyrirbæri hafi einhverja þá eiginleika sem skilja þá frá öðrum hugsunum eða athöfnum sem ekki eru skapandi. Við höfum þegar komið okkur upp ákveðinni aðgreiningu sem er gagnleg hér, það er aðgreiningu milli þess sem er gert vitandi vits, eða af ásetningi, og þess sem við gerum óvart, eða einfaldlega gerist. En eins og ég benti á hér framar þá er sú aðgreining ekki nógu þröng. Að gera eitthvað af ásetningi er jú eitthvað sem á við um stóran hluta af athöfnum okkar og hugsunum. Ég nefndi hér að ofan að stundum væri vandséð hvernig við getum greint gild- isdóm um sköpunargáfu frá því þegar við erum einfaldlega að lýsa þeirri stað- reynd að ákveðin hugsun eða hegðun sé skapandi. Ég orðaði það sem svo að ákvörðunin um það hvort hugmynd nær athygli okkar eða á sér einhvers konar framhaldslíf, t.d. í athöfn, felist í mati á gildi hugmyndarinnar, en ekki í mati á því hvort hugmyndin er skapandi í þeim skilningi að vera ný eða óvænt, og ólík fyrri hugmyndum. Ef þessi lýsing er rétt má draga af því ákveðnar ályktanir. Í fyrsta lagi er augljóst að okkur er ákveðinn vandi á höndum, ef við viljum halda gildisdómum algerlega fyrir utan umfjöllunarefnið. Í öðru lagi er greinilegt að ákveðin reynsla eða upp- lifun af því hvernig hugmyndin er, frekar en reynsla eða upplifun af því hvort hún er skapandi eða ekki, ræður miklu um það hvort hugmyndin fær framhaldslíf og um það hvort við ákveðum að byggja athafnir okkar á henni. Skapandi hugmynd er ekki aðeins ætlandi. Það er einnig falin í henni sú sértæka ætlan gerandans að breyta viðfangi sínu, ekki á hvaða hátt sem er, heldur þannig að útkoman úr þeirri breytingu sé ný, sé önnur en þegar viðkomandi fékkst síðast við sömu úrlausnarefni. Þessi breyting er ekki hvaða breyting sem er. Eins og við sáum hér að ofan, þá hefur mat okkar á því hvað er skapandi eitthvað með þann gildisdóm sem við fellum yfir hugsuninni eða athöfninni að gera. Ástæðan er sú að skapandi hugsun eða athöfn er alltaf skapandi í samhengi við ákveðnar aðstæður sem eru til staðar, og út frá ákveðinni útkomu sem við höfum í huga (mótaða eða ómótaða) þegar hugsunin eða athöfnin er framkvæmd. Skapandi hugsun er ekki án samhengis, heldur er það samhengið sem hún fæðist í sem gerir hana mögulega. Boden og Stokes nota hugmyndina um hugmyndasvæði (e. conceptual space) til þess að tjá svipaða hugmynd og þá sem ég er að setja fram hér. Munurinn á nálgun minni og þeirra er sá að þó svo við séum sammála um að reglur og forskriftir séu það sem hugmyndasvæði er búið til úr, tel ég að reynsla Hugur 2017-6.indd 172 8/8/2017 5:54:00 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.