Hugur - 01.01.2016, Page 177

Hugur - 01.01.2016, Page 177
 Sköpun, kerfi og reynsla 177 vitneskja af þessu tagi er nauðsynleg til að rétt sé að tala um skapandi hugsun. Í dæminu af sumarstarfsmanninum sem skrúfar sams konar skrúfu aftur og aftur er hann vissulega meðvitaður um umhverfi sitt og breytir því í einhverjum skilningi, en það er engin skapandi aðgerð framkvæmd þar sem reglurnar, eða meðvitundin um núverandi ástand, eru nóg til að útskýra fullkomlega hugsunina eða aðgerðina sem fer fram. Í dæminu af því að detta og skapa þannig óvart fallegt listaverk er vandséð hvernig við gætum talað um skapandi aðgerð, vegna þess að meðvitund um það samhengi sem athöfnin fer fram í vantar. Eins og ég rakti hér að ofan er oft vandasamt að gera greinarmun á gildisdómi um skapandi hugsun eða aðgerð, og dómi um tilvist skapandi hugsunar eða að- gerðar. Ástæðan fyrir því er tengd því að skapandi hugsun eða aðgerð er tvíátta hugsun eða aðgerð. Gildisdómurinn felst í því hversu gagnleg, eða mikilvæg við- komandi hugsun eða aðgerð er, innan ákveðins samhengis, við ákveðnar aðstæður. Það er að segja; skapandi hugsun eða aðgerð miðast alltaf við einhvers konar upplifun eða mat á því samhengi sem hugsunin eða aðgerðin er framkvæmd í og á að hafa áhrif á. Það er jafn mikilvægt því að hún sé ný, í þeim skilningi að vera ekki framkvæmd eingöngu af vana, eða eingöngu í krafti reglna, eða kerfis sem við þekkjum, og jafnvel erum. Þessi tvöfalda upplifun okkar af því að vera skap- andi fellur því vel að þeirri hugmynd að skapandi hugsun eða aðgerð sé tvíátta. Það að nota tvíátta upplifun til aðgreiningar skapandi hugsunar frá öðrum tegundum hugsunar er það sem verður vandasamast við það að útfæra þessa til- gátu mína. Það er auðvitað ekki alveg nauðsynlegt að það sé hægt til þess að tilgátan nái fram að ganga. Ég gæti fallist á veikari útgáfu af hugmyndinni, þar sem það er einfaldlega skilið eftir opið hvort við getum greint skapandi hugsun frá öðrum tvíátta hugsunum. Ég tel þó að rök séu fyrir því að aðgreiningin sé möguleg. Ég mun ekki setja fram verjanlega útgáfu af þessum greinarmun hér, heldur aðeins reifa í hverju hann gæti verið falinn og hvar væri helst að leita að kennimarki hans. Það að vera gerandi kallar á ákveðna tegund af upplifun, upplifun af því að vera áorkandi á heiminn í kringum sig. Oft á tíðum er þeirri upplifun best lýst sem tvíátta upplifun. Þetta á þó ekki alltaf við. Í mörgum tilfellum er upplifun gerand- ans af því að vera að gera eitthvað eða hugsa eitthvað fullkomlega útskýrð með til- vísun til aðstæðna eða (í mjög óformlegum skilningi) með tilvísun í það kerfi sem hugsunin eða athöfnin er hluti af. Ég teygi mig í kaffibollann til að ná mér í kaffi, og upplifi það sem gerandi, (að ná í kaffibollann með ákveðinni handarhreyfingu) en ég upplifi það jafnframt sem eitthvað sem er fyllilega útskýranlegt með tilvísun til þeirra aðstæðna eða þess kerfis sem ég er hluti af. Það sama á ekki við þegar ég þarf eða ákveð að beita nýrri nálgun við að ná mér í kaffi, t.d. með því að beita hugarorkunni einvörðungu. Það sem skilur þar á milli er upplifun af því að vera að gera eitthvað í fyrsta skipti, að vera að gera eitthvað á þann hátt að það er ekki fyllilega útskýranlegt með því að vísa í aðstæður eða kerfi. Þessi munur á upp- lifunum er ágætt kennimark þess hvenær er um skapandi hugsun eða aðgerð að ræða og hvenær ekki. Í nánari greiningu væri hægt að setja upp strangari skilyrði fyrir því hvað felist í aðstæðum eða kerfi, svo sem þekkingarfræðileg skilyrði, Hugur 2017-6.indd 177 8/8/2017 5:54:01 PM
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.