Hugur - 01.01.2016, Síða 181

Hugur - 01.01.2016, Síða 181
 Siðfræði í atvinnulífi og samfélagsábyrgð 181 stjórnkerfið; bæta þurfi viðskiptasiðferði, stjórnsiði og vinnulag, efla fagmennsku og siðferðisvitund. Styrkja þurfi skilyrði siðferðilegrar rökræðu meðal borgar- anna um sameiginleg hagsmunamál sín. Leggja þurfi áherslu á réttnefnda samfé- lagsábyrgð og hamla gegn sérhagsmuna- öflum og þröngri einstaklingshyggju. Siðvæðing íslensks samfélags ætti eink- um að beinast að því að styrkja þessa þætti og það sé langtímaverkefni sem krefst framlags frá fólki á öllum sviðum samfélagsins.4 Síðla árs 2016 kom út þýðing bókar sem miðar að því að fræða nemendur sem koma til með að fara út í atvinnulífið og munu þar af leiðandi þurfa að takast á við ýmiss konar siðferðilegar áskoranir. Það má því segja að þýðingin svari kall- inu um aðra stjórnunarhætti eftir hrun og sé viðleitni til að bæta það ástand sem lýst er í rannsóknarskýrslunni. Bókin er frá 2012 og heitir á frummálinu Etikk og samfunnsansvar. Höfundur hennar, Øyvind Kvalnes, er dósent við Handels- høyskolen BI í Noregi en hann hefur gefið út margar bækur og ritgerðir um hagnýta siðfræði og siðfræði í atvinnu- lífinu. Bókin skiptist í fjóra hluta og tuttugu og tvo stutta kafla. Það er kostur hve stuttir kaflarnir eru og nær höfundur að tengja þá saman með skýrum hætti. Hann endar hvern kafla á að vísa í þann næsta og þannig skapast gott flæði við lesturinn. Hver kafli er brotinn upp með töflum, útdráttum með aðalatriðum og inndregnum punktum. Á bakhlið kápunnar er bókin sögð fjalla á aðgengi- legan hátt um siðfræði í atvinnulífinu og er það réttmæt lýsing. Hún er tiltölulega fljótlesin og siðfræðihugtök útskýrð með greinargóðum hætti. Bókin gæti því reynst vel við kennslu enda notendavæn og textinn skýr. Önnur hagnýt ástæða þess að bók- in væri góð í kennslu er að í henni eru fjölmörg raunhæf dæmi sem tekin eru úr viðskiptalífinu og hversdagsleikanum. Dæmin gera siðfræðina aðgengilegri og færa hana niður úr fílabeinsturnin- um yfir í hversdagslífið. Án raundæma á siðfræðin það til að verða fjarlæg og ópersónuleg. Kvalnes nær því að tengja vel almenn hugtök í siðfræði og kenn- ingar við athafnir og hegðun í atvinnu- lífinu. Með því að nota almennar kenn- ingar og kynna þær lítillega er auðveldara að beita siðfræðinni á það sérhæfða svið sem atvinnulífið er. Eins og fyrr segir flæðir bókin vel en á stöku stað eru innsláttarvillur sem auðveldlega hefði mátt komast hjá með betri prófarkalestri. Þetta truflar þó ekki lesturinn vegna þess að textinn stendur fyrir sínu. Aukinheldur hefði mátt vanda betur til verka hvað varðar útlit bókar- innar. Að mínu mati gefur kápan engan veginn til kynna um hvað bókin er. Tit- illinn er skýr og góður en kápan segir mér að hér sé um að ræða einhvers konar sjálfshjálparbók með léttu yfirbragði. Fyrsti hluti bókarinnar er tileinkaður verkfærum siðfræðinnar. Þar er fjallað um notkun hugtaka og meginreglna sið- fræðinnar til að greina krefjandi aðstæð- ur. Í þessum fyrstu köflum er sem sagt farið yfir muninn á siðferði og siðfræði og bent á að tilfinningar og heilbrigð skynsemi geti leiðbeint fólki í ýmsum að- stæðum. „Siðfræðin verður gagnleg þegar við komumst í sjálfheldu og erum óviss um hvað beri að gera, eða þegar einhver reynist ósammála okkur og ætlast til að við færum rök fyrir afstöðu okkar“ (10). Kvalnes segir að siðferði sé persónulegt og almenn viðhorf til þess sem er rétt eða rangt í samskiptum fólks, það sé ekki fræðigrein og lærist af umgengni við aðr- ar manneskjur. Hann segir að siðfræði sé aftur á móti kerfisbundin hugsun um hvað geti talist rétt eða rangt í samskipt- um fólks, hún sé fræðigrein og lærist af því að kynna sér meginreglur og hugtök Hugur 2017-6.indd 181 8/8/2017 5:54:03 PM
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.