Heilbrigt líf - 01.12.1941, Side 15

Heilbrigt líf - 01.12.1941, Side 15
•er geymt í hita, heldur en þar, sem hitinn er lítill, eins og hér á landi. Mætti því vel vera, að hveitið gæti geymzt hér mánuðum saman án þess að spillast nokkuð, og væri því ef til vill hægara fyrir okkur að nota það, heldur en ýmsar aðrar þjóðir. Síðan styrjöldin skall á, hafa ýmsar þjóðir farið að at- huga hjá sér manneldismálin meira en áður. Og það, sem athygli þeirra hefir þá beinzt einna mest að, eru einmitt brauðin. Bretar skipuðu svo fyrir í fyrra með lögum, eft- ir ráði rannsóknarnefndar þeirra í læknisfræði (Medical Research Council), að bæta skyldi Bi-fjörvi (thiamin) og kalki í allt hveiti, sem notað er í brauð. Thiamin er hreint Bi-fjörvi. Þekkja menn samsetningu þess (Ci2 Hi8 N( 0 S Cl2) og geta framleitt það úr öðrum efnum (syntetiskt). Það þolir vel hita og eyðileggst ekki við vanalegan bökun- arhita. Ein alþjóðaeining af Bi vítamíni = 2,5 y thiamin. En y er = Vio,ooo gr. Ameríkumenn hafa nú starfandi nefnd sérfróðra manna til að koma á svipuðum umbótum hjá sér, og er vitanlegt, að sú nefnd ætlar að leggja til, að bætt verði Bi-fjörvi í brauðin og auk þess kalki og járni. Fyrir stórt ríki eins og Bandaríkin, er slík breyt- ing á brauðaframleiðslunni geysimikið átak. Meðal ann- ars þarf mjög aukna framleiðslu á Bi-fjörvi, ef horfið verður að því ráði að nota hreint thiamin saman við brauðið. En svo mikið er víst, að ekki líða margir mán- uðir, áður en sú breyting verður lögfest þar vestra. Ástralíumenn eru nú að hugsa um að bæta brauðin hjá sér, en ekki hefir náðst fullt samkomulag um, hvaða leið skuli valin. Ýmsir af þeirra sérfróðu mönnum eru frekar með því að taka upp aðra aðferð heldur en þá að bæta thiamíni (Bt-fjörvi) í brauðin, og vilja heldur bæta þau upp með því að nota sem mest af heilkorninu sjálfu, í þeim tilgangi, að brauðið verði líkast því, sem það ætti að vera, ef korninu væri ekki spillt í framleiðslunni. Heilbrigt líf 119
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Heilbrigt líf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.