Heilbrigt líf - 01.12.1941, Blaðsíða 36
það er vandaður og tíður gólfþvottur. Með honum næst
burt allt smágerðasta og hættulegasta rykið af gólfinu,
án þess að andrúmsloftið spillist.
II. Smitun um meltingarfærin á sér stað, ef matvæli
geyma í sér lifandi berklasýkla. Hefir áður verið drepið
á, að ekki væri óalgengt, að berklasýklar fyndust í mjólk
og mjólkurafurðum, og getur það þá valdið smitun. Miklu
varðar að vita, hvort sýklarnir hafa borizt í mjólkina frá
berklaveikum kúm eða frá berklaveiku starfsfólki, sem
fæst við framleiðslu, sölu eða afhendingu mjólkur, svo að
hægt sé að finna upptökin og girða fyrir smitunina.
Aðrar mat- og munaðarvörur geta líka borið sýkla á
svipaðan hátt og mjólkin. Er því nákvæmt eftirlit nauð-
synlegt við framleiðslu og sölu allrar matvöru.
Öllum mun ljós nauðsyn þess, að vel séu þrifin matar-
ílát og allur borðbúnaður. Ætti jafnan að þvo slík
áhöld tvisvar og skipta um vatn, en annað vatnið ætti að
vera heitt sápuvatn, eða helzt sjóðandi vatn. Illa þrifnir
bollar, glös og önnur drykkjarílát eru einkum varasöm
í þessu sambandi.
Þessi smitunarháttur er þó eigi mjög algengur. Slím-
húð munns og garna verja líkamann vel gegn árásum
sýklanna. Saltsýra magans eyðir þeim eða lamar þá og
dregur úr sýkingarmætti þeirra.
í löndum, þar sem mikið er um nautaberkla, er smitun
um meltingarfærin algengari en þar sem lítið er um þess
háttar berklaveiki. Veldur hún oftast eitlabólgum í sjúkl-
ingunum, ennfremur berklum í beinum og liðum og jafn-
vel heilahimnubólgu. Þó er þessi tegund smitunar jafnan
talin góðkynjaðri, en ef menn smitast um öndunarfærin.
III. Snertismitunin verður vanalega vegna skorts á
nauðsynlegum og sjálfsögðum þrifnaði. Hefir þá eigi ver-
140
Heilbrigt líf