Heilbrigt líf - 01.12.1941, Page 50
trú á, að lækningin takist. Eigi allfá dæmi þess þekki ég
héðan úr bænum frá síðastliðnum vetri.
Eini vegurinn til að bæta úr þessu er, að upp verði
komið hér í bænum kláðalækningastöð, svipað og „Fnat-
stationen“, sem starfrækt er í Kaupmannahöfn í sam-
bandi við Kommunehospitalet, og aðrar sams konar
stofnanir í fleiri borgum á Norðurlöndum.
Á kláðalækningastöð er sjúklingurinn smurður lyfjum
með aðstoð æfðrar hjúkrunarkonu, og síðan fær hann
rækilegt sápubað. En meðan á lækningunni stendur, eru
föt sjúklingsins sótthreinsuð. Á þennan hátt er trygging
fyrir, að lækningin fari rétt fram, og er nú létt mikilli
fyrirhöfn og áhyggjum af húsmóður og heimilisfólki.
Kostnaður við slíka lækningastöð gæti aldrei orðið mikill,
og lægi beint við að hafa hana í sambandi við sóttvarna-
hús bæjarins.
Væri óskandi, að heilbrigðisstjórn bæjarins sæi sér fært
að hrinda þessu nauðsynjamáli í framkvæmd hið allra
fyrsta.
SVÖR VIÐ GETRAUN UM LÍKAMANN
bls. 142
1. Heiladingullinn. 2. Barkalokan. 3. Þvottabrisið (pancreas).
4. Slímhúðin í mjógirninu. 5. Bringubeinið. 6. Sjón-(net-)himna
augans. 7. Vélindið. 8. Vinstra afturhólf hjartans. 9. Hljóðholið í
eyranu. 10. Slimhúðarkirtlar magans. 11. Bogagöngin í völundar-
húsinu. 12. Brjósthimnan. 13. Skeifugörnin. 14. Gómtjaldið og úfur-
inn. 15. Þindin. 16. Lifrin. 17. Munnvatnið. 18. = 15. 19. Nýrun.
20. Ristillinn.
154
Heilbrigt lif