Heilbrigt líf - 01.12.1941, Síða 86
epla. Það er athugandi, að B-fjörvi leysist í vatni. Þess
vegna er viturlegt að sjóða grænmeti og jarðarávöxt sem
stytztan tíma, og hirða soðið. Húsmæður munu yfirleitt
hirða kjötsoð, en því miður eru margar fákunnandi um
að nota fisksoð og sóð frá grænmeti í súpur og sósur. En
soð er mesta þing í því skyni, því þar er B-fjörvi að finna.
Yfirleitt verður að leggja áherzlu á tilbreytilegt fæði. Og
til þess að tryggja B-fjörvi er mikilsvert, að menn eigi
kost á nýmjólk, eggjum, appelsínum og heilhveiti. Líka er
B-fjörvi að hafa í púðursykri og jafnvel í fleiri sykur-
afurðum („melasse"). En margt gerir það að verkum, að
fæðið vill verða tilbreytingalítið, sumpart vegna dýrtíðar,
en sumpart af kunnáttuleysi húsmæðra og annarra, sem
stunda matargerð. Þess vegna ráðleggur dr. William L.
Laurence að bæta í matarefnin B-fjörvi, sem nú er fram-
leitt í verksmiðjum. Kemur þetta heim við hugmyndir og
tillögur próf. N. Dungals um að bæta daglegt brauð hér
á landi með B-vítamínum.
Margir eru efagjarnir á nýjungar í vísindalegum efn-
um. En í vítamínfræðinni mega menn vera við öllu búnir
í framtíðinni — líka því, að menn kunni að ráða eitthvað
meir við áleitni kerlingar Elli, en nú á sér stað.
HVERNIG ATVIKAST BEINBROT?
Á Röntgendeild Landspítalans komu 210 beinbrotnir menn til
athugunar árið 1940. Atvik slysanna voru þessi: 32 bilslys, 38
önnur umferðaslys, 33 sjóslys, 11 iðnaðarslys, 13 verkamanna-
slys, 14 íþróttaslys, 20 slys í heimahúsum, 5 skotslys, 9 sinnum
áflog, 35 ýmis slys.
190
Heilbrigt líf