Heilbrigt líf - 01.12.1941, Síða 105

Heilbrigt líf - 01.12.1941, Síða 105
minnka, og' ei’ þá augljóst, að hættara er við því en ella, að skortur verði á einhverju þeirra. í þessu, en ekki öðru, er fólgin áhættan af of mikilli neyzlu sykurs og annarra slíkra matvæla. Sykurneyzlan hefir á síðari árum aukizt hér á landi sem annars staðar, og mun óvíða hafa verið meiri fyrir stríðsbyrjun. Skal ekki um það rætt að svo stöddu, að hve miklu leyti þessi aukning sykur- neyzlunnar út af fyrir sig sé til ófarnaðar, til þess vantar enn full- nægjandi upplýsingar um mataræðið í heild. Um það fæst væntan- iega nokkur vitneskja af rannsóknum Manneldisráðs, sem nú er verið að vinna úr. Ég tel þó ekki ólíklegt, að neyzla sykurs og hvíts hveitis saman- lagt hafi yfirleitt verið orðin of mikil hjá okkur, og því góðra gjalda vert, að Náttúrulækningafélagið berjist fyrir því, að draga úr neyzlu þessara matartegunda, ef það er gert á skynsamlegan hátt, svo að árangurs sé að vænta. Sérstaklega má benda á það, eins og læknar hafa þráfaldlega áður gert, að óhóflegt sykurát getur staðið börn- um fyrir þrifum. Því að auk þess, sem sykurinn kemur þannig beint í stað annarra fjölbreyttari fæðutegunda, eins og áður var skýrt, veldur sætindaát einatt lystarleysi, ekki sízt við neyzlu milli mála, eins og oft vill verða. En, hvað sem þessu líður, þá er vist um það, að tröllasögur um síhnignandi heilsufar og hrörnun þjóðarinnar, svo að til bráðrar tortímingar horfi, hafa ekki verið rökstuddar og samrýmast illa þeim staðreyndum, að manndauði fer sílækkandi, mannsævin leng- ist og líkamsþroski eykst. Einn kvilla má þó benda á, sem vafalaust hefir aukizt á siðari timum, en það eru tannskemmdir. Orsakir til tannskemmda eru ekki að öllu kunnar, en líkur eru til þess, að þær megi að miklu leyti telja til vöntunarsjúkdóma. Getur þar margt komið til greina, en einna helzt hafa böndin þótt berast að kalki og D-vitamíni, þ. e. skorti á þessum efnum í fæðunni. Hvorugt þess- ara efna er í sykri eða hvítu hveiti, og fái þessar tegundir of mikla hlutdeild í daglegu fæði, og einkum ef það verður á kostnað þeirra fæðutegunda, sem innihalda þessi efni í ríkum mæli (mjólk, smjör, lýsi o. fl.), getur það orðið til þess, að of lítið fáist af lcalki og D-vitamíni, til þess að halda tönnunum hraustum. Út frá þessu sjónarmiði væri það vafasamt, hvort það eitt, að heilhveiti væri tekið upp í stað hvíta hveitisins, mundi hafa milda þýðingu vegna tannskemmdanna, því að jafnvel heilhveitið inniheldur lítið kalk og ekkert D-vitamín. Það, sem heiihveitið hefir fram yfir hvíta hveitið af efnum, sem hætt er við, að geti vantað, er aðallega Heilbrigt líf 209
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Heilbrigt líf

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigt líf
https://timarit.is/publication/1835

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.